Það eru stórlaxar að skjóta upp kollinum út um allt, nú síðast höfðum við spurnir af einum 101 cm í Hofsá, þar sem veiði hefur gengið alveg bærilega.
Gísli Ásgeirsson leiðsögumaður og umsjónarmaður við Hofsá sendi okkur stuttan pistil um atburð gærdagsins og hann er svohljóðandi: „Það er búið að vera frekar rólegt en það er lýsingarorðið sem veiðimenn nota þrátt fyrir að við séum fyrir ofan meðaltal. Kröfurnar eftir góðærin eru orðnar miklar. Í morgun landaði Mary Palmer þessum laxi í Öskumelshyl á svæði 7 í Hofsá. Laxinn mældist rétt um 101 cm og var tekinn á Haughitch.“
Meira á https://www.votnogveidi.is/frettir/eru-thau-ad-faann/nr/3934
Birt með góðfúslegu leyfi Vötn og Veiði

