Nokkuð vissir um að Breivik hafi ekki átt vitorðsmenn 10. ágúst 2011 13:30 Samsett mynd Vísis.
Með hverjum deginum sem líður verður norska lögreglan æ vissari um að fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik hafi verið einn að verki þegar hann lét til skarar skríða með skotárás í Utöya og sprengitilræði í miðborg Oslóar í síðasta mánuði. Þetta sagði lögmaður norsku lögreglunnar, Christian Hatlo, á blaðamannafundi í dag. Að hans sögn eru engir aðrir grunaðir um að hafa verið í vitorði með Breivik. Þá kom einnig fram á fundinum að lögreglu hefur ekki tekist að finna myndavél sem talið er að Breivik hafi verið með áður en hann var handtekinn. John Roger Lund yfirlögregluþjónn bað fólk einnig um að sýna því skilning að rannsókn málsins geti tekið langan tíma. Breivik var í gær yfirheyrður í samtals tíu tíma og nú hafa lögreglumenn samtals rætt við hann í fjörutíu klukkustundir frá því hann var handtekinn. Hann mun vera afar samvinnuþýður þegar kemur að því að útskýra hvernig hann skipulagði árásirnar en yfirheyrslan í gær snérist um að fá skýrari mynd af atburðarrásinni. Áður hefur verið greint frá því að Breivik hafi íhugað að neita að tjá sig nokkuð um málið við lögreglu en það virðist ekki á rökum reist. Yfirheyrslur yfir honum halda áfram í dag, að því er fram kemur á vef norska ríkisútvarpsins.
Hryðjuverk í Útey Noregur Mest lesið Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent Tók málin í eigin hendur og opnar dagforeldravef Innlent Átökin ná nýjum hæðum Erlent Blasi illa við að það eigi að troða áformunum í gegnum kerfið Innlent Hópsmit á Mánagarði ein „alvarlegasta uppákoma af þessu tagi“ Innlent Þjófar réðust á starfsmann verslunar Innlent Sérstakur saksóknari gerði samning við PPP Innlent Metfjöldi sjálfsvígssímtala og hætt við þjónustuskerðingu Innlent Borgarstjóri í Bandaríkjunum handtekinn vegna mótmæla Erlent Ökumaðurinn hefur gefið sig fram Innlent Fleiri fréttir Fundu mögulega eitt af 67 fórnarlömbum hálfri öld síðar Kínverskir verktakar fá ekki að bora skipagöng í Noregi Vopnahlé í höfn milli Indlands og Pakistans Kim lofar hermenn sína sem börðust í Kúrsk sem hetjur Átökin ná nýjum hæðum Borgarstjóri í Bandaríkjunum handtekinn vegna mótmæla Yfirvöld Mexíkó kæra Google Gamlar nektarmyndir felldu glænýjan þjóðaröryggisráðgjafa Svíþjóðar Gerir Pirro að ríkissaksóknara í DC Bein útsending: Fyrsta messa nýs páfa Býst við að bróðir sinn Leó feti í fótspor Frans Stigmögnunin heldur áfram Hvað vitum við um Leó páfa? Norðmenn undirbúi sig undir möguleg stríðsátök „Þvílík spenna og þvílíkur heiður fyrir landið okkar“ Bíða með að stimpla AfD sem öfgasamtök Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Samþykktu Trump-samninginn einróma Takmörkuð eftirspurn eftir ríkisstjórn með flokki Farage Gera enn árásir með drónum og eldflaugum Reyndi til hins síðasta að koma skikki á fjármál Vatíkansins Einhliða vopnahlé Rússa hafið Vesturlönd þurfa að borga milljarðatjón af árás Rússa á Tsjernobyl Heimila hernum að hefna fyrir árásirnar í gær Vaktin: Robert Francis Prevost er nýr páfi Herþota hrapaði til jarðar í Finnlandi Auka njósnir og eftirlit á Grænlandi Misstu aðra herþotu í sjóinn Segjast hafa skotið niður indverskar herþotur Indland gerir árás á Pakistan Sjá meira