„Þegar ég var yngri var það um leið og jólaserían var sett á svalirnar heima og það er ein af þeim hefðum sem ég hef haldið eftir að við konan fórum að búa að setja jólaseríu á svalahandriðið."

Hvað kemur þér í hátíðarskap? „Ég held að ég verði að segja þegar jólalögin byrja að hljóma í útvarpi enda hef ég síðustu tuttugu jól spilað jólalög í útvarpi," segir Ívar.

Eftirminnileg jól
„Ég man sérstaklega eftir fyrstu jólunum eftir að við fórum að búa en það voru heilmikil viðbrigði að skapa eigin jólahefðir," svarar Ívar spurður um eftirminnileg jól sem hann gleymir seint.
„Þar má nefna að við keyptum eitt ljótasta jólatré sem ég hef séð enda vorum við frekar sein að kaupa jólatré það árið."

„Önnur mjög eftirminnileg jól voru jólin 2007 þegar við fórum öll systkyni konunnar og börn þeirra ásamt tengdapabba til Orlando í Flórída og vorum þar yfir jól og áramót."
„Mjög sérstakt að hafa hvorki kulda né snjó þegar maður er að fara milli verslana og kaupa jólagjafir," segir Ívar.Æfir þú líkamsrækt yfir jólin? „Já ég hef nú alltaf æft í kringum jól og áramót."

„Ég æfi á þorláksmessu og tek svo frí aðfangadag og jóladag en annan dag jóla er maður mættur aftur í æfingasalinn enda ekkert eins gott og að fara og hreinsa aðeins út eftir átið yfir jóladagana.
„Að hreyfa sig er bara hluti af lífsstíl mínum," segir Ívar að lokum.-elly@365.is