Loftbóludekk frá Bridgestone 25. október 2011 11:00
Fyrirtækið Betra grip ehf. rekur heildverslun að Lágmúla 9, með verkstæðistæki frá Ravaglioli og viðgerðavörur fyrir hjólbarða frá Tip Top. Fyrirtækið er jafnframt umboðs- og söluaðili fyrir Bridgestone- og Firestone-hjólbarða, sem framkvæmdastjórinn Arngrímur Þorgrímsson segir vera með þeim bestu sem völ er á. „Að öðrum ólöstuðum er Bridgestone stærsti og einn virtasti dekkjaframleiðandi á markaðnum, með höfuðstöðvar í Japan og framleiðslu um allan heim. Við flytjum inn Bridgestone-hjólbarða fyrir allar gerðir bifreiða, allt frá dekkjum undir fólksbíla og upp í stór og sterk lyftaradekk sem vega hálft tonn. Um þessar mundir erum við svo einmitt að fá þaðan nýjustu línu loftbóludekkja, þriðju kynslóðina WS70, í hús," segir Arngrímur og lýsir eiginleikunum nánar. „Dekkin hafa á skömmum tíma farið sigurför um heiminn enda á ferð fyrsti raunverulegi valkosturinn í stað hefðbundinna nagladekkja. Hjólbarðarnir eru míkroskornir, mjúkir og með loftbólum sem virka eins og öflugar sogskálar. Þær sjúga sig niður í malbikið og draga í sig vökva og hrinda jafnóðum frá sér þegar hjólin snúast. Dekkin eru þannig góð i vetraraðstæðum, hálku, bleytu og snjó og veita töluvert öryggi. Af sömu sökum eru þau hljóðlát og umhverfisvæn og endast vel." Betra grip starfrækir einnig hjólbarðaverkstæði í húsnæðinu að Lágmúla 9. „Þar vantar aldeilis ekki upp á þjónustulund og reynslu þar sem þaulreynt afgreiðslufólk veitir upplýsingar, ráðgjöf og aðstoð undir stjórn Jóhannesar Jónssonar, sem hefur unnið í þessum geira í meira en aldarfjórðung og þekkir hann því eins og lófann á sér," segir Arngrímur. Heildverslunin og verkstæðið eru opin alla virka daga frá klukkan 8 til 18. Verkstæðið er opið á laugardögum frá klukkan 10 til 14. Allar nánari upplýsingar eru veittar í síma 533-3999 eða á heimasíðu fyrirtækisins, slóðin er betragrip.is.
Sérblöð Mest lesið Ræða við „hrokafulla“ Kana vegna áhyggja af tollum Trumps Viðskipti erlent Tæknin geti komið í veg fyrir þjófnað Viðskipti innlent Ætlar ekki að deyja í smán og gefur frá sér auðæfin Viðskipti erlent „Ég vaknaði alltaf með móral og leið aldrei vel“ Atvinnulíf Nova eignast tuttugu prósenta hlut í Dineout Viðskipti innlent Salan á Íslandsbanka: Samið við fjóra erlenda söluaðila Viðskipti innlent „Umbreyting í átt að velsældarhagkerfi krefst hugrekkis“ Viðskipti innlent Fluttu mun minna til Bandaríkjanna en meira annað Viðskipti erlent Bankastjóri Íslandsbanka: Syngur hástöfum fjölskyldunni til hryllings Atvinnulíf Farþegum fjölgaði um 24 prósent í apríl Viðskipti innlent Fleiri fréttir Plastkubbahús sem eru íslensk hönnun og framleiðsla Ókeypis trygging með öllum Hakkapeliita dekkjum frá Nokian Tyres Hvað fær Iðnaðarmaður ársins 2025 í verðlaun? Sjá meira