Kvikmyndahátíð veiðimanna RISE á laugardaginn 8. mars 2012 12:11 Það styttist í veiðisumarið og af því tilefni er frábært að horfa nokkrar veiðimyndir með félögunum Mynd af www.strengir.is
Miðasala á RISE Fluguveiði Kvikmyndahátíð hófst formlega þann 10. febrúar í Veiðivon Mörkinni 6. Fyrirfram höfðu verið pantaðir vel yfir 100 miðar af þeim rúmlega 200 sem í boði eru og er nú farið að þynnast verulega í miðabunkanum. Ljóst er að sýning sem þessi fer vel í íslenska veiðimenn því ásóknin er með besta móti. Uppselt var á sýninguna í fyrra en þá var sýningin haldin í fyrsta sinn á Íslandi og komust færri að en vildu. Við reiknum með því að það verði aftur uppselt í ár eins og í fyrra og því hvetjum við sem flesta að ná sér í miða sem fyrst svo þeir missi ekki af einum alskemmtilegasta viðburðinum á dagatali stangveiðimanna og kvenna að undanskildum veiðitúrunum sjálfum. Sýningin fer fram í Bíó Paradís þann 10. mars n.k. kl. 20:00 en miðasala fer fram í Veiðivon Mörkinni 6 og er miðaverð kr. 2.100,- í Reykjavík.
Stangveiði Mest lesið Lokatalan í Straumunum Veiði Veiði að glæðast í Straumunum Veiði Léttklæddar laxaflugur Veiði Er sumarflugan 2014 fundin? Veiði Síðasta rjúpnahelgin framundan Veiði Fimmta tölublað Veiðislóðar komið út Veiði Fleiri lokatölur úr laxveiðiánum Veiði Fimmta framboðið til stjórnar SVFR Veiði Laxveiðin 2011 - Bráðabirgðatölur Veiði Of mikið veitt í Soginu Veiði