Það er ekki hægt að neita því að mataræðið léttist oft á sumrin í takt við léttari lund og bjartari daga. Brynja Nordqvist flugfreyja deilir hér með okkur uppáhalds sumarsalötunum sínum.
Sumarsalat
Veislusalat eða Klettasalat
Pera, vínber, jarðarber, agúrka, tómatar, piparostur, ristaðar furuhnetur og valhnetur.
Allt skorið smátt og sett út í salatið.
Balsamikedik frá Modena og Balsamiksíróp frá Merchant Gourmet sem ég blanda saman og set út í salatið.
Að lokum set ég stundum kjúkling eða nautakjöt yfir þegar ég nota salatið sem aðalrétt.
Avókadó- og rækjusalat
2 bollar rækjur
2-3 harðsoðin egg (má sleppa)
1 avókadó (skorinn smátt)
1 msk. sætt sinnep
1-2 msk. tómatsósa
6 msk. grísk jógúrt eða eftir smekk
Herbamare sjávarsalt
Svartur pipar eftir smekk
Allt sett í skál og blandað vel saman. Það er líka gott að skera avókadó í helminga, taka kjarnann úr og setja salatið ofan í holuna þar sem kjarninn var. Avókadó er hollt og gott.
Má sleppa sinnepi og tómatsósu – setja karrý í staðinn.
Helgarmaturinn - Sumarsalöt Brynju Nordqvist
