Frá 25 til 60 prósenta afsláttur á veiðileyfum Trausti Hafliðason skrifar 3. maí 2012 17:19 Eystir-Rangá. Mynd af www.lax-a.is
Lax-á fagnar 25 ára afmæli sínu um þessar mundir og af því tilefni er fyrirtækið með afmælistilboð á ýmsum veiðisvæðum. Stefán Sigurðsson, hjá Lax-á, segir í samtali við Veiðivísi að þetta sé til gamans gert en auðvitað vonist hann til þess að veiðimenn geti nýtt sér þessi tilboð. Allt bendi reyndar til þess því viðtökurnar hafi verið afar góðar í dag. Frá og með deginum í dag og alla virka daga næstu tvær vikur, eða til 15. maí, verður boðið upp á ný tilboð á hverjum degi. Hægt er að skoða tilboðin á vefsíðunni agn.is en þau birtast á vefnum klukkan 12 og gilda til klukkan 13 daginn eftir. Hvert tilboð gildir því í 25 klukkutíma. Í dag býður Lax-á um 25 prósenta afslátt í veiði í Eystri-Rangá, dagana 4. til 10. júlí og tæplega 60 prósenta afslátt í Galtalæk, dagana 8. til 12. maí. Stöngin í Eystri-Rangá kostar frá 16.400 krónum (4. júlí) upp í 32.900 (10. júlí). Stöngin í Galtalæk kostar 5.000 krónur. Stefán segir að veiðileyfasalan hafi almennt tekið kipp um leið og það fór að hlýna í veðri. Hann segir erlenda veiðimenn sýna landinu mikinn áhuga og að sala til þeirra hafi síst minnkað miðað við undanfarin ár.Næstu daga mun Lax-á bjóða upp á afslátt á eftirtöldum veiðisvæðum:HvannadalsáKrossáHalláMiðdalsáYtri RangáTungufljótSkjálfandafljótGæsaveiði í GunnarsholtiHróarslækur
Stangveiði Mest lesið Lækkað verð á vatnasvæði Lýsu Veiði Náði 12 punda urriða í Kleifarvatni Veiði Vikulegar veiðitölur heldur lágar víðast hvar Veiði Allar lokatölur komnar úr laxveiðiánum Veiði Urriðaveiðin að toppa á Þingvöllum Veiði Flott opnun í Brunná og Sandá Veiði Ertu þú að henda laxi á hverju vori? Veiði Hrun í smálaxastofninum er ekki einsdæmi á Íslandi Veiði Fimmta framboðið til stjórnar SVFR Veiði 57 laxar gengnir í gegnum teljarann í Elliðaánum Veiði