Matur

Helgarmaturinn - Nautalundir að hætti Nínu Bjarkar

Ljósmynd/Heiða Helgadóttir

Nína Björk Gunnarsdóttir ljósmyndari býr í Lúxemborg með fjölskyldu sinni. Hún nýtur þess að elda góðan mat og býður hér upp á dýrindis uppskrift fyrir helgina.

Nautalundir í litlum sneiðum með súkkíni og blaðsalati.

600 g nautalundir, skornar í 1 cm þykkar sneiðar

1-2 súkkíni, skorið í sneiðar

1 lítið eggaldin, skorið í sneiðar

1 höfuð eikarlauf, skolað vel í ísköldu vatni og þerrað

1 dl kryddaðar ítalskar ólífur

4 msk. þurrristaðar furuhnetur

2 msk. nýrifnar flögur af parmesan-osti

1 1/2 dl jómfrúarólífuolía

1 msk. balsamík-edik

1 búnt ferskt basilika

2 hvítlauksgeirar

1 tsk. rifinn sítrónubörkur

salt og svartur pipar úr kvörn.

Aðferð

Steikið nautalundarsneiðarnar eldsnöggt á rifflaðari pönnu eða útigrilli. Saltið og piprið.

Veltið súkkíní og eggaldinsneiðunum upp úr jómfrúarolíu og steikið á sama hátt og saltið og piprið.

Rífið niður eikarlaufsalatið og látið í skál.

Takið fjórar matskeiðar af jómfrúarolíu og hrærið saman við eina matskeið af balsamíkó-edikinu. Saltið og piprið.

Hellið þessu yfir salatblöðin og blandið vel saman. Látið salatið á miðjan disk eða á fat.

Raðið litlu nautasteikunum og súkkíní-bitunum umhverfis salatið. Setjið ólífur meðfram og á salatið. Látið sólþurrkuðu tómatana yfir. Stráið þurrristuðum furuhnetunum yfir salatið.

Látið basílíkublöðin, hvítlauksgeirana og sítrónubörkinn í kvörnina á litlu „töfrasprotamatarvinnsluvélinni" og hakkið fínt. Hellið afganginum af jómfrúarólífuolíunni saman við og saltið og piprið eftir smekk.

Skvettið þessu fallega yfir litlu steikurnar, súkkíníið og eggaldinið og látið að síðustu nýrifnar parmesanflögur yfir allt.

Borið fram með brauði.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.