Sarah Blake Bateman var vitanlega ánægð og glöð með nýja Íslandsmetið sem hún setti í 100 m flugsundi á Ólympíuleikunum í Lundúnum í morgun.
Sarah synti á 59,87 sekúndum og varð í fjórða sæti síns riðils. Hún var í öðru sæti eftir fyrri 50 metrana sem voru mjög fljótir hjá henni.
„Ég var að vonast til að vera aðeins fljótari en ég er samt ánægð með tímann," sagði Sarah sem var sex hundraðshlutum úr sekúndu undir Íslandsmetinu sínu. „Þetta var minn besti tími sem ég er ánægð með en maður vill alltaf meira."
„Mér leið vel í sundlauginni en ég var kannski aðeins of fljót á fyrri 50 metrunum," sagði hún en þá vegalengd synti hún á 27,71 sekúndum sem er ekki nema 0,39 sekúndum frá Íslandsmeti hennar í 50 m flugsundi. „Seinni spretturinn var því ekki alveg eins og ég vildi hafa hann."
Sarah synti á 2. braut en svissneska stelpan á þriðju braut vann riðilinn. „Það breytti ekki miklu fyrir mig enda vorum við allar nokkuð jafnar í þessum riðli. Það sem mestu máli skiptir er að fá góða samkeppni til að hvetja mig áfram og ég fékk hana í dag."
„Ég vona að þetta boði gott, sérstaklega fyrir 50 m skriðsundið," sagði hún að lokum en það er hennar sterkasta grein, sem hún keppir í þann 3. ágúst næstkomandi.
