Matur

Heimsfræg með heimagerðan heilsusafa

myndir/cover media & twitter
Söngkonan Fergie, 37 ára, er með smáatriðin á hreinu þegar kemur að útlitinu. Hún var mynduð með heimagerðan grænan heilsusafa klædd í leðurvesti, með snúð í hárinu og sólgleraugu á nefinu þegar hún yfirgaf banka í Beverly Hills í gærdag.

Eftir bankastússið fór hún beint í líkamsræktina. Eins og sjá má á myndunum var hún rétt skóuð fyrir átökin framundan.

Ekki nóg með að stelpan hugi vel að heilsunni heldur er hún flott á alla kanta. Í myndasafni má einnig sjá myndir sem Fergi setti sjálf á netið af sér í bláum kjól úr metal og myndir af skrautlegu nöglunum sínum.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.