Matur

Uppskrift vikunnar - heimalagað jurtate að hætti Önnu Rósu grasalæknis

Anna Rósa, grasalæknir
Anna Rósa, grasalæknir
Anna Rósa grasalæknir bætti á dögunum við fjórum nýjum vörutegundum í línuna sína og mun einmitt kynna þær á handverkshátíðinni á Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit um helgina.

„Nýju vörurnar mínar eru burnirót í tinktúru (sem er algjör nýjung á Íslandi) en hún er sérstaklega góð til að styrkja taugakerfið, við kvíða, depurð, álagi, einbeitingarskorti og orkuleysi og svo má ekki gleyma að hún er líka talin góð við getuleysi. Svo er ég líka með vöðva- og gigtarolíu sem ég hef verið að þróa í samstarfi við gigtarsjúklinga og svo líka bóluhreinsi fyrir unglingana og slakandi nudd- og húðolíu."

Te við magabólgum

og brjóstsviða

Anna Rósa deilir hér með okkur uppskrift af heimalöguðu tei gegn magabólgum og brjóstsviða en enn þá er hægt að tína bæði vallhumal, mjaðjurt og fjallagrös í það.

2 msk. mjaðjurt

1 msk. vallhumall

1 msk. blóðberg eða fjallagrös

Jurtirnar eru settar í 750 ml hitabrúsa og sjóðandi vatni hellt yfir. Síið jurtirnar frá þegar hellt er í bolla en setjið þær svo aftur í hitabrúsann og látið liggja í allan daginn. Drekkið einn hitabrúsa á dag.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.