Staðfestar vísbendingar eru um að magn þörunga sé að aukast í Þingvallavatni. Þetta kemur fram í vöktunarskýrslu fyrir árið 2011. Með þessu minnkar tærleiki vatnsins.
Í fundargerð Þingvallanefndar kemur fram að Álfheiður Ingadóttir, formaður nefndarinnar, og Ólafur Örn Haraldsson þjóðgarðasvörður hafi hitt Hilmar Malmquist, forstöðumann Náttúrustofu Kópavogs, um miðjan ágúst.
"Þingvallavatn hefur verið í flokki A yfir hreinleika og skyggni en hluti mælinga fellur á árinu 2011 í flokk B. Í skýrsludrögum sem Umhverfisstofnun hefur unnið kemur einnig fram að nitur hefur aukist og er töluvert meira í vatninu og á vatnasvæðinu en áður var talið," segir um fund Álfheiðar og Ólafs með Hilmari.
Þá kemur fram að eftir að nýi Gjábakkavegurinn var tekinn í notkun sé mikil í gegnum þjóðgarðinn og hún aukist stöðugt:
"Umferðin er mest þegar þurrt er, en mælingar á mengun fara einungis fram þegar rignir. Í framhaldi af erindi formanns síðastliðið haust til umhverfisráðuneytis verður boðað til nýs fundar á næstunni til að fara yfir mælingar á nitri frá umferðinni sem hefur margfaldast."

