Yfirlýsing frá Hrafnhildi: Rann til í matvörubúð í Frakklandi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. desember 2012 15:26 Hrafnhildur Lúthersdóttir. Mynd/Hag
Sundkonan Hrafnhildur Lúthersdóttir hefur ákveðið að koma fram og segja frá því hvernig hún meiddi sig skömmu fyrir Ólympíuleikana í London í sumar. Meiðslin þýddu að hún sleppti fyrstu keppnisgrein sínum á leikunum og þurfti að synda þjáð í þeim greinum sem hún tók þátt í á leikunum. Hrafnhildur rann til í matvörubúð í Frakklandi á leið heim af morgunæfingu en hún var það í æfingabúðum fyrir leikanna. Læknir sem skoðaði hana taldi um smávægileg meiðsli væru að ræða en það reyndist svo ekki vera rétt greining. „Ég hefði í raun átt að koma fram og segja allt eins og var, en eins og ég segi, þá skammaðist ég mín að hafa slasað mig svona stuttu fyrir mót og var verulega reið og sár út í sjálfa mig þótt þetta hafi verið slys sem enginn sá fyrir. Þrátt fyrir allt, þá var ég stolt af sjálfri mér fyrir að hafa þraukað í gegnum sársaukann og klárað það sem ég var á endanum að æfa fyrir allt árið og síðustu ár," segir Hrafnhildur meðal annars í yfirlýsingu sinni. Hrafnhildur ákvað að senda bréf til íþróttafréttamanna eftir að hafa horft á samantektarþátt um Ólympíuleikana á RÚV en hann var sýndur rétt fyrir jól. Hrafnhildur segist hafa þá áttað sig á því að enn ríkti leynd yfir meiðslum hennar frá því í sumar.Yfirlýsingin frá Hrafnhildi Góðan daginn og gleðileg jól! Ástæðan fyrir þessum pósti er að eftir að hafa horft á samantektina af Ólympíuleikunum virðist eins og ástæða fyrir meiðslum mínum hafi í raun aldrei verið almennilega útskýrð og enn ríkir svokölluð "leynd" yfir því. Ég meiddist á olnboga í æfingabúðum í Frakklandi tveimur vikum fyrir Ólympíuleikana og því var ég auðvitað frekar sár og vandræðaleg fyrir að meiðast svona nálægt mótinu. En ég rann semsagt til í matvörubúð í Frakklandi á leið heim af morgunæfingu. Læknir þar sem skoðaði mig um leið og slysið gerðist sagði að ég hafi bara tognað í olnboganum og ég myndi vera góð eftir 3-4 daga. Svo reyndist nú ekki. Það var ekki fyrr en ég kom til Englands í Ólympíuþorpið og fékk segulómun á olnbogann sem við komumst að því að ég var í raun með sprungu í beini og blætt hafði inn á liðinn. Eftir að hafa rætt málin vel og lengi við landsliðsþjálfarann, sálfræðing, fararstjóra og lækni ÍSÍ ákváðum við í sameiningu að best væri að ég myndi sleppa fyrsta sundinu mínu til að ég fengi þá aðeins meiri tíma til að jafna mig. Lengi vel var í spilunum að ég myndi jafnvel sleppa að synda allt og þá myndi önnur koma inn í staðinn til að synda í boðsundinu. Þar sem þetta var aðeins sprunga í beininu þá mátti ég ennþá hreyfa olnbogann og gat synt án þess að skemma nokkuð þótt það væri hræðilega sárt. Fyrir sundin var svo tappað af blóði úr olnboganum sem hjálpaði mikið til og leyfði mér að hreyfa og rétta úr olnboganum mun meira. Með þessu sama liði (þjálfaranum, sálfræðingnum og farastjóranum) ákváðum við að við myndum ekki tala mikið um meiðslin við fréttamenn og fjölmiðla. Eftir góða frammistöðu á Evrópumeistaramótinu þar sem ég lenti í 4. sæti, hafði ég og aðrir gert væntingar til að gera vel á Ólympíuleikunum. Ég var því í miklu uppnámi á þessum tíma og ákvað þetta aðallega útaf því að ég vildi ekki að fólk myndi líta á mig neitt öðruvísi en hina íþróttamennina. Ég vildi að fjölmiðlamennirnir myndu spyrja mig út í sundið og hvernig mér leið alveg eins og hinum, ekki spyrja út í meiðslin og einblína á það. Ég vildi ekki að meiðslin myndu taka alla athyglina og ég vildi sýna fram á það að ég gæti ennþá synt og vera nálægt mínu besta og skilað mínu í boðsundinu. Því miður þá snérist sú hugmynd í höndunum á mér og ég fékk athygli útaf meiðslunum, ekki útaf ég var á Ólympíuleikunum að synda næstbesta tíma sem ég hef nokkurn tímann synt í 200m bringusundi, eða af því að ég var í fyrstu boðsundssveit Íslands á Ólympíuleikunum. Meiðslin tóku yfir og það var eina sem var einblínt á. Ég hefði í raun átt að koma fram og segja allt eins og var, en eins og ég segi, þá skammaðist ég mín að hafa slasað mig svona stuttu fyrir mót og var verulega reið og sár út í sjálfa mig þótt þetta hafi verið slys sem enginn sá fyrir. Þrátt fyrir allt, þá var ég stolt af sjálfri mér fyrir að hafa þraukað í gegnum sársaukann og klárað það sem ég var á endanum að æfa fyrir allt árið og síðustu ár. Ég keppti á Ólympíuleikunum með sprungu í olnboga og gerði mun betur en ég bjóst við. Ég hefði auðvitað viljað vita hvernig mér hefði gengið hefði ég verið heilbrigð og ómeidd, en eftir á að hyggja, sé ég ekki fyrir mér Ólympíuleikana neitt öðruvísi en þeir voru. Ég vildi bara koma þessu á framfæri því mér finnst leiðinlegt að fólk sé ennþá að hugsa út í þetta og pæla í þessu og hef heyrt slúðursögur sem eru bara kolvitlausar. Ég vona að þetta komi þessu öllu á hreint og ég hafi svarað öllum ósvöruðu spurningunum. Virðingarfyllst, með jólakveðju, Hrafnhildur Lúthersdóttir Flórída
Sund Mest lesið Jafngildi 20 Þjóðarhalla við Hringbraut svo ein á að geta risið í Laugardal Sport Nauðgunardómurinn ógildur og Dani Alves er frjáls ferða sinna Sport Depay stóð á boltanum og slóst áður en hann lyfti titlinum Fótbolti Víkingar rúlluðu KR-ingum upp Fótbolti Dagskráin í dag: Átta liða úrslit FA bikarsins og margt fleira Sport Lét dóttur sína hlaupa þrátt fyrir að hún ætti erfitt með að anda Sport Sabonis ekki með Litháen á EM Körfubolti Markasúpa í Mjólkurbikarnum Fótbolti Segir að Schumacher sé ófær um að tala: „Staðan er mjög sorgleg“ Formúla 1 Andri Már markahæstur en Ýmir hafði betur í Íslendingaslagnum Handbolti Fleiri fréttir Verstappen óánægður með Red Bull fyrir að reka liðsfélagann Jafngildi 20 Þjóðarhalla við Hringbraut svo ein á að geta risið í Laugardal Sabonis ekki með Litháen á EM Dagskráin í dag: Átta liða úrslit FA bikarsins og margt fleira Nauðgunardómurinn ógildur og Dani Alves er frjáls ferða sinna Depay stóð á boltanum og slóst áður en hann lyfti titlinum Markasúpa í Mjólkurbikarnum Víkingar rúlluðu KR-ingum upp Andri Már markahæstur en Ýmir hafði betur í Íslendingaslagnum Breiðablik Lengjubikarmeistari eftir öruggan sigur á Þór/KA Aldís Ásta og félagar í lykilstöðu eftir stórsigur Ráku sigursælasta þjálfarann rétt fyrir úrslitakeppnina Sveinbjörn bikarmeistari í Ísrael Segja Barcelona hafa svindlað og kærðu Almar kjörinn varaforseti „Væri helvíti gaman að enda ferilinn svona“ Arnór fyrsta nafn á eftirsóknarverðum lista Voru fimm stigum undir þegar 12,6 sekúndur voru eftir en unnu samt Frumraun Gylfa í beinni í kvöld Spyrja sig hvort Freyr geti heillað eins og Slot í Liverpool Þóra og Ægir best en engin verðlaun í Skagafjörð Sorrí Valdi og allir hinir Var ósátt en er nú mætt aftur í landsliðið Þau bestu verðlaunuð á lokahófi KKÍ „Mér finnst þeir geta farið í báðar áttir“ Miðasalan á EM er hafin Martin um EM dráttinn: „Yrðu algjör forréttindi að mæta þeim á vellinum“ Besta-spáin 2025: Meðvindur þrátt fyrir mótbyr Tók tapsáran Willum töluverðan tíma að jafna sig Segir að Schumacher sé ófær um að tala: „Staðan er mjög sorgleg“ Sjá meira