Valdarán Sif Sigmarsdóttir skrifar 13. september 2012 06:00 Svertingjar, mikið ósköp eruð þið orðnir þreytandi með þetta jafnréttistal ykkar, það er orðið að þráhyggju. Það má bara ekki ráða hvítan mann í góðu störfin, þá byrjið þið að vola – hvað um verri störfin – þar heyrist ekkert í ykkur. Þið eruð farnir að ganga á rétt hvítra. Hafið þið, svertingjar, hugsað út í það, hvort yfir höfuð stjórnmál séu réttu störfin fyrir svertingja? Hafið þið hugleitt hvort allt ruglið sé af því að þið eruð orðnir of margir í störfum sem þið valdið ekki. Þið skulið hugsa þessi mál, en ekki vera með þennan yfirgang. Lífið á að vera ganga hvers og eins á eigin forsendu, og hver og einn á að vita sín takmörk. Ef morgunkaffið þitt frussaðist yfir Fréttablaðið biðst ég velvirðingar. Flestir sem lesa ofangreinda efnisgrein geta sammælst um að þarna fari fornfálegur hugsunarháttur; hugsunarháttur sem var við líði áður en Rosa Parks neitaði að standa upp fyrir hvítum manni í strætó; þankagangur tíma áður en fólk lét sig mannréttindi varða. Sé orðið „kona" hins vegar sett í staðinn fyrir orðið „svertingi" horfir málið öðruvísi við. Orðræðan er ekki lengur fornfáleg. Um er að ræða orðræðu samtímans; orðræðuna á Íslandi árið 2012. Textinn að ofan styðst við aðsenda grein Stefaníu Jónasdóttur sem birtist í Morgunblaðinu í síðustu viku nema hvað í grein hennar er konum lesinn pistillinn fyrir að „ganga á rétt drengja og karla" þegar kemur að tækifærum samfélagsins. Innlegg Stefaníu í jafnréttisumræðuna væri hin besta skemmtun ef ekki væri fyrir þær ógnvekjandi sakir að hún á sér fjölda skoðanasystkina. Undanfarin misseri er sem gripið hafi um sig ofstopafull vænisýki í garð þeirra sem láta sig jafnrétti kynjanna varða. Það er eins og sumir trúi á eitthvert samsæri kvenna. Að í bígerð sé valdarán byggt á frekju og hatri á karlmönnum og markmiðið sé ekki jafnrétti heldur alger yfirráð sem felist í að hlekkja alla með Y-litning við eldavél og græða í lófa þeirra skúringakúst. En þeim sem kúldrast í skotgröfum kommentakerfa internetsins með bogana spennta tilbúnir að verjast byltingunni er óhætt að fara í hvíldarstöðu. Tölfræðin sýnir að langt er í þessa valdatöku kvenþjóðarinnar. Af 200 launahæstu einstaklingum landsins eru tólf prósent konur. Samkvæmt nýjustu tölum OECD er launamunur kynjanna 13,5%. Konur eru 20% framkvæmdastjóra fyrirtækja landsins. Af tólf dómurum í Hæstarétti eru tvær konur. Ritstjórar allra helstu dagblaða landsins eru karlmenn. Stefanía og félagar geta andað léttar. Staða konunnar „bak við eldavélina" virðist tryggð enn um sinn. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Sif Sigmarsdóttir Mest lesið Hvenær ber fullorðið fólk ábyrð? Guðrún Ósk Þórudóttir Skoðun Á að láta trúð ráða ferðinni? Ingólfur Steinsson Skoðun Trans fólk er ekki að biðja um sérmeðferð Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Ofþétting byggðar í Breiðholti? Þorvaldur Daníelsson Skoðun Vofa illsku, vofa grimmdar Haukur Már Haraldsson Skoðun Þetta er ekki raunverulegt réttlæti Snorri Másson Skoðun Vinnubrögð Carbfix eru ámælisverð Ólafur Sigurðsson Skoðun Hugsanaskekkja forsætiráðherra í Evrópumálum – Þetta eru tvö skref! Ole Anton Bieltvedt Skoðun Kópavogur forgangsraðar í þágu kennara, barna og skólastarfs Ásdís Kristjánsdóttir Skoðun Vöxtur hugverkaiðnaðar á biðstofunni Erla Tinna Stefánsdóttir,Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir Skoðun
Vöxtur hugverkaiðnaðar á biðstofunni Erla Tinna Stefánsdóttir,Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir Skoðun
Vöxtur hugverkaiðnaðar á biðstofunni Erla Tinna Stefánsdóttir,Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir Skoðun