Afskipti af tóbakssölu barna þyrnir í augum [email protected] skrifar 20. nóvember 2012 06:00 verslun Heilbrigðiseftirlitið og verslunarmenn eru ekki samstíga í túlkun á lögum um aðkomu yngri en átján ára að sölu tóbaks.Fréttablaðið/Stefán
Samtök verslunar og þjónustu saka Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar og Kópavogsvæðis um íþyngjandi og ólögmæt afskipti af afgreiðslustörfum þeirra sem eru yngri en átján ára í verslunum þar sem tóbak er selt. Í bréfi til heilbrigðiseftirlitsins útskýrir lögmaður Samtaka verslunar og þjónustu, SVÞ, að einstaka verslanir hafi komið á því verklagi að í þeim tilvikum þar sem fólk yngri en átján ára sé við afgreiðslu sé tryggt að samtímis sé þar fullorðinn starfsmaður. „Grundvallast umrætt fyrirkomulag á því að þegar verslað er með tóbak, eða óskað eftir að kaupa tóbak, þá er ávallt kallaður til starfsmaður eldri en átján ára sem sér þá um að meðhöndla og afgreiða tóbak og að sama skapi tryggir sá fullorðni aðili að gengið sé úr skugga um að viðkomandi viðskiptavinur sé eldri en átján ára," segir í bréfi SVÞ. Heilbrigðisnefnd Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis tók bréf SVÞ fyrir á síðasta fundi sínum. Þar var bókað að ásökun SVÞ um að heilbrigðisnefnd stundi lögbrot við störf sín væri grafalvarleg. „Í allra stystu máli snýst þetta um hvar ábyrgðin á tóbakssölu í verslun á að liggja og hvort varpa megi henni á barn, í tilvikum þegar unglingar eru í vinnu á afgreiðslukössum ákveðinna verslana. Aðstæður verða til þess að þeim er ætlað að koma inn í söluferli tóbaks, sem er óheimilt samkvæmt lögum. Auðvelt er fyrir verslanir að leysa þessi mál og eru þau leyst víða," segir í bókun nefndarinnar. Meintur misbrestur á að fylgt sé ákvæðum laga um tóbaksvarnir þar sem unglingar vinna kom til kasta heilbrigðisráðuneytisins haustið 2008. Í umsögn sagði ráðuneytið óheimilt að aðrir en þeir sem orðnir séu átján ára kæmu að sölu tóbaks. „Engu breytir þar um þó svo eldri starfsmaður sé til staðar og aðeins kallaður að afgreiðsluborði í slíkum tilvikum. Það er skoðun ráðuneytisins að með aðgangi unglingsins að sölunni sé búið að afhenda honum vöruna til að hann geti selt hana. Aðrar óljósar ráðstafanir til að koma í veg fyrir að salan fari fram skipta ekki máli í því sambandi," sagði í umsögninni sem lögð var fram á fyrrnefndum fundi hjá heilbrigðisnefndinni sem kvað ljóst að lítill vilji væri til þess hjá sumum verslunum að leysa málið í samræmi við lög og reglur. „Heilbrigðisnefnd mun því senda erindi Samtaka verslunar og þjónustu til velferðarráðuneytisins þar sem ljóst er að kveða þarf fastar að, eigi vilji löggjafans um vernd barna og unglinga að ná fram að ganga."
Fréttir Mest lesið Ekki náð að góma þjófa í dulargervi Innlent Segir orðræðu varaforsetans ósanngjarna Erlent Vildu hætta Ameríkuflugi en keyptu svo 757-þotuna Innlent Tala látinna komin yfir þúsund Erlent Nýtt hverfi innblásið af gömlu Reykjavík Innlent RÚV leiðréttir umfjöllun um mál Ásthildar Lóu Innlent „Það er skítkalt hérna“ Erlent Borgarfulltrúi sagður hafa sýnt ógnandi hegðun á íbúafundi Innlent Jagúar, skrautleg ferð, Baltasar Kormákur og fullt af „ís“ Innlent Fullveldi Íslands háð því að alþjóðalög séu virt Innlent Fleiri fréttir Unglingur hrækti á lögreglumann Ekki náð að góma þjófa í dulargervi Vildu hætta Ameríkuflugi en keyptu svo 757-þotuna Fullveldi Íslands háð því að alþjóðalög séu virt Karlar eiga mjög erfitt með að viðurkenna risvandamál Nýtt hverfi innblásið af gömlu Reykjavík RÚV leiðréttir umfjöllun um mál Ásthildar Lóu Eldur í gömlu sundhöllinni í Keflavík Mannskæður jarðskjálfti og vasaþjófar í dulargervi Borgarfulltrúi sagður hafa sýnt ógnandi hegðun á íbúafundi Jagúar, skrautleg ferð, Baltasar Kormákur og fullt af „ís“ Eins leitað eftir slagsmál Greiða atkvæði um verkfall á Grundartanga Kæra skógrækt við Húsavík vegna rasks á varplendi fugla Lokaæfing fyrir almyrkva Vilja að bæjarstjóri lækki laun sín jafn mikið og bæjarfulltrúar Döpur vegna „hetjunnar“ Ástu og „ómaklegrar aðfarar“ RÚV Saka lögregluna um að rægja Kínverja Verður aflífaður eftir allt saman Harðir skjálftar í Asíu og Play til Möltu Lögreglustjóri mun stýra Mannréttindastofnun Vara við þjófum sem dulbúa sig sem ferðamenn Stuðningur við símabann í grunnskólum eykst og mælist 62 prósent Skoða hvort hægt sé að flýta uppbyggingu í Úlfarsárdal Bein útsending: Borgarstjóri ræðir húsnæðisuppbyggingu í Reykjavík Erlendir vasaþjófar herja á Þingvelli og fleiri ferðamannastaði Fimm handteknir vegna líkamsárásar og haldið upp á „alþjóðlega Viagra daginn“ Sólmyrkvi á laugardaginn Harmsögur af stríði, fjöldagrafir og tíðar árásir taka á líkama og sál Skatturinn snýr sér að íþróttafélögum og samfélagið titrar Sjá meira