Lúxusveiði í verðlaun í myndagetraun 4. febrúar 2013 12:19 Neðra horn og Klöppin eru gjöfulir veiðistaðir neðan Ægissíðufoss í Ytri-Rangá. Mynd / Garðar
Fyrirtækið Lax-á hefur í dag myndagetraun þar sem verðlaunin eru þriggja daga veiði á besta tíma í Ytri-Rangá, aflahæstu laxveiðiá landsins. Að því er fram kemur á vef Lax-ár fylgir verðlaununum uppihald fyrir einn og leiðsögumaður. Getraunin felst í birtingu mynda af veiðiám sem þátttakendur eiga að nefna. Ekki er nauðsynlegt að nefna veiðistaðina sem sýndir eru heldur dugir að vera með nafn árinnar sjálfrar. Birtar verða átta myndir sem menn verða að vera með allar réttar til að komast í vinningspottinn. Úr honum verður dregið næsta sunnudag. Fyrsta myndin verður birt á vef Lax-ár klukkan fjögur í dag. Eins og fyrr er getið er Ytri-Rangá aflahæsta laxveiðiá landsins. Þar veiddust 4.353 laxar í fyrrasumar og 4.961 lax sumarið 2011. Veitt er á tuttugu stangir í ánni.[email protected]
Stangveiði Mest lesið Fimmta framboðið til stjórnar SVFR Veiði Lækkað verð á vatnasvæði Lýsu Veiði Er sumarflugan 2014 fundin? Veiði Fimm stórlaxar á hitch í Víðidalsá Veiði Ennþá góður reytingur í Ytri Rangá Veiði Ertu þú að henda laxi á hverju vori? Veiði Frábær veiði í Hlíðarvatni í gær Veiði Veiði að glæðast í Straumunum Veiði Flott opnun í Brunná og Sandá Veiði Batnandi útlit í Eyjafjarðará Veiði