Sterar á heimili Pistorius

Samkvæmt fréttum frá The Sun eru uppi vangaveltur um hvort íþróttamaðurinn hafi tekið æðiskast í kjölfar steraneyslu, en notkun stera eru sögð geta valdið miklum skapsveiflum, og myrt Steenkamp.
Í gær bárust svo fregnir af því að lögreglan hefði fundið blóðuga krikketkylfu á heimilinu. Er nú kannað hvort Steenkamp hafi verið lamin með kylfunni en hauskúpa hennar var kramin þegar bráðaliðar mættu á staðinn.
Tengdar fréttir

Fréttaskýring: Kaldrifjað morð eða hræðilegt slys?
Dómari í borginni Pretoria í Suður-Afríku hefur ákveðið að taka mál spretthlauparans Oscar Pistorius fyrir á morgun, eftir að búið er að taka blóðsýni úr honum. Til stóð að morðákæra gegn honum yrði tekin fyrir hjá dómstólum síðdegis í dag.

Pistorius ákærður fyrir morð
Suðurafríski hlaupakappinn Oscar Pistorius var handtekinn í fyrrinótt og síðar ákærður fyrir að hafa orðið kærustu sinni að bana.

Sá Pistorius bera blóðugan líkamann niður tröppurnar
Segir vitnið að Pistorius hafi verið í miklu uppnámi og að þau hafi saman reynt að stöðva blæðinguna úr líkama hennar en án árangurs.

Neitar að hafa myrt kærustuna
Oscar Pistorius neitar því að hafa myrt Steenkamp kærustu sína af yfirlögðu ráði og mótmælir ákæru þess efnis harðlega í yfirlýsingu sem fjölskylda hans sendi frá sér eftir hádegi í dag.

"Við erum auðvitað í rusli yfir þessu öllu"
Íslenskir vinir íþróttahetjunnar Oscars Pistorius eru harmi slegnir eftir voðaverkið á miðvikudagsnótt. Honum er lýst sem ljúfum og góðum dreng sem hafi reynst fjölskyldunni vel. Pistorius hágrét þegar saksóknari las honum ákæru fyrir morð.

Nike íhugar að hætta samstarfi við Pistorius
Nike íhugar nú að hætta samstarfi við suður-afríska spretthlauparann Oscar Pistorius en hann sætir nú ákæru fyrir að hafa skotið kærustu sína, fyrirsætuna, Reevu Steenkamp á heimili þeirra í Pretoríu í Suður-Afríku.

Spretthlauparinn Pistorius leiddur fyrir dómara í dag
Suður-afríski spretthlauparinn Oscar Pistorius verður færður fyrir dómara í dag en hann er talinn hafa myrt kærustu sína, Reevu Steenkamp, í fyrrinótt.

Pistorius hágrét í réttarsal
Spretthlauparinn Oscar Pistorius grét í réttarsal í morgun þegar hann var formlega ákærður fyrir morðið á kærustu sinni á heimili þeirra í gærmorgun.

Blóðug krikketkylfa á heimili Pistoriusar
Lögreglan í Suður Afríku fann blóðuga krikketkylfu á heimili hlauparans Oscars Pistoriusar. Pistorius hefur verið í haldi lögreglu frá því á fimmtudag, grunaður um að hafa skotið 29 ára gamla unnustu sína, Reevu Steenkamp, til bana.

Var að undirbúa óvænta Valentínusargjöf
Suður-afríski spretthlauparinn Oscar Pistorius kemur fyrir dómara síðar í dag þar sem krafist verður gæsluvarðhalds yfir honum og á hann yfir höfði sér ákæru fyrir morð.

Ekki víst að um mistök hafi verið að ræða
Lögregluyfirvöld í Pretoria í Suður-Afríku segja að ekki sé víst að Oscar Pistorius hafi skotið kærustu sína fyrir mistök, eins og haldið hefur verið fram í fjölmiðlum í morgun.