Matur

Dásamleg hráfæðiskaka með jarðaberjum og kókos

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar

Helga Gabríela, hráfæðisgúrinn sem Lífið birti grein um í gær, deilir hér með okkur uppskrift af dásamlegri hráfæðisköku með jarðaberjum og kókos. Fullkomin með sunnudagskaffinu.

Kókos og jarðaberjakaka

Botn:

1 bolli af Raw Health súkkulaði múslí (fæst í Heilsuhúsinu)
.

2-3 mjúkar döðlur og þurrkaðar fíkjur


1/2 bolli valhnetur


1-2 msk lífrænt gróft hnetusmjör


1 msk kókosolía

Það fyrsta sem þarf að gera er að saxa döðlurnar, fíkjurnar og valhneturnar smátt eða skella þeim í matvinnsluvél.

Öllu hráefninu blandað vel saman, og þjappað í form. Sáraeinfalt!

Krem:

1 kókoshneta


5-6 jarðaber, eða eftir smekk

1 bolli kókosrjómi 
Engifer (malað)

Kanill, eftir smekk


Kókoskjötið úr kókoshnetunni, sett í blandara ásamt jarðaberjum, 
kókosrjóma og kryddi. Blandað þannig að kremið verði silkimjúkt. Ég vildi 
hafa kökuna lagskipta, en það ekki nauðsynlegt. Botninum er þjappað samam, kremið sett á milli og jarðaber skorin og raðað með. Síðan er um að gera að skreyta kökuna með jarðaberjum og kókosflögum. Geymist síðan í kæli í a.m.k. í eina klst.

Njótið vel!

Helga Gabríela.







×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.