Jaguar í slag við BMW 3 Finnur Thorlacius skrifar 2. mars 2013 12:45 Þessi á að keppa við 3-línu BMW og þá Audi A4 og Mercedes Benz C-Class í leiðinni
Kæmi á markað árið 2015 og í kjölfar hans jepplingur byggður á sama undirvagni. Lengi hefur sá orðrómur verið uppi að Jaguar hyggi á framleiðslu lítils bíls sem keppa myndi við hina söluháu 3-línu BMW. Með þessari mynd hefur það verið staðfest. Bíllinn er frekar líkur XF bíl Jaguar, en hurðirnar þó talsvert minni, þaklínan breytt og afturendinn styttri. Strax er búið að uppnefna bílinn XS, líklega vegna smæðar sinnar í samanburði við flesta Jaguar bíla. Bíll þessi verður byggður á mjög léttri PLA grind Jaguar og í hann verður notað mikið af léttu hráefni, allt til að takmarka þyngd hans. Vélarnar sem í boði verða í þessum nýja bíl eru fjögurra og sex strokka túrbínuvélar. Búist er við því að bíllinn fari á markað árið 2015 og ennfremur heyrast raddir um að í kjölfar hans sjáist fljótt jepplingur sem byggður verður á sama undirvagni. Yrði það fyrsti jepplingur Jaguar. Það er greinilega sóknarhugur í Jaguar, sem er í eigu hins indverska Tata bílaframleiðanda, líkt og Land Rover.
Mest lesið Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Innlent Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Erlent Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Erlent