Verja dýrmæta dropa í Gljúfurá Garðar Örn Úlfarsson skrifar 10. mars 2013 22:38 Þar sem Gljúfurá rennur í átt að Norðurá til hægri á myndinni fellur Hópið í Gljúfurá frá vinstri. Mynd / Loftmyndir ehf, "
Í miklum þurrkum munar um hvern dropa," segir Þórólfur Sveinsson, formaður Veiðifélags Borgarfjarðar, um fyrirhugaða mannvirkjagerð til að hindra vatnsstreymi úr Gljúfurá í vatnakerfi Hópsins. Skömmu áður en Gljúfurá fellur í Norðurá rennur Hópið í Gljúfuránna. Í miklum þurrkum snýst dæmið hins vegar stundum við þannig að vatn úr Gljúfurá berst yfir í Hópið og skurði því tengdu. "Þetta þýðir að mjög lítið getur verið í Gljúfurá þegar hún fellur í Norðurá og er laxinn þá tregur til að ganga upp í Gljúfuránna," útskýrir Þórólfur. Tekið var á þessu máli á félagsfundi Veiðifélags Gljúfurár í síðasta mánuði. Stjórn veiðifélagsins var þá falið að láta gera nauðsynlegar mælingar á vatnsrennsli og í framhaldi af því grípa til nauðsynlegra aðgerða til að hindra vatnsrennsli úr Gljúfurá um Hóp og skurð úr Hópinu. "Ákvörðun um gerð mannvirkis verður tekin þegar niðurstöður mælinga liggja fyrir en áhersla er lögð á að um varanlegt mannvirki verði að ræða sem skilar árangri. Mælingar verði gerðar í samráði við landeigendur," segir í samþykkt Veiðifélags Gljúfurár. Á félagsfundinum var einnig kynnt upplýsingablað frá Óðni Þórarinssyni hjá athugana- og tæknisviði Veðurstofu Íslands sem hann hafði tekið saman að beiðni stjórnar félagsins. Er það um áætlaðan kostnað við rennslismælingar vegna vatnsrennslis í skurði í Ferjubakkaflóa. "Er þar annars vegar um að ræða stakar rennslismælingar þrisvar til fjórum sinnum og hins vegar rekstur síritandi vatns hæðarmæla. Um væri að ræða mælingar á þremur stöðum, það er við skurð, við Hóp og við ós Gljúfurár," segir um upplýsingablaðið í fundargerð veiðifélagsins. Fram kemur að Í báðum tilvikum sé heildarkostnaður í kringum ein milljón króna auk virðisaukaskatts. Stjórn félagsins var falið að leita ódýrustu leiða vegna mælinganna. Leggja áherslu á tímann frá júní til október.
Stangveiði Mest lesið Fimmta framboðið til stjórnar SVFR Veiði Lækkað verð á vatnasvæði Lýsu Veiði Er sumarflugan 2014 fundin? Veiði Fimm stórlaxar á hitch í Víðidalsá Veiði Ennþá góður reytingur í Ytri Rangá Veiði Ertu þú að henda laxi á hverju vori? Veiði Frábær veiði í Hlíðarvatni í gær Veiði Veiði að glæðast í Straumunum Veiði Flott opnun í Brunná og Sandá Veiði Batnandi útlit í Eyjafjarðará Veiði