Gylfi: Við getum spjarað okkur án Gareth Bale Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. apríl 2013 14:30 Gylfi Þór Sigurðsson fagnar marki sínu í gær. Mynd/Nordic Photos/Getty
Tottenham varð fyrir miklu áfalli í gær þegar Gareth Bale meiddist illa á ökkla í 2-2 jafntefli á móti svissneska liðinu Basel í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Gylfi Þór Sigurðsson tryggði Tottenham jafntefli með glæsilegu marki og hann var í viðtali á heimasíðu ITV. Gylfi var spurður út í það að missa Gareth Bale sem hefur þegar skorað 22 mörk á tímabilinu. „Það er mikill missir ef Gareth getur ekki verið með okkur í næstu leikjum en það bíða samt hungraðir leikmenn á bekknum sem eru staðráðnir í að standa sig vel. Þegar einhver leikmaður meiðist þá verða liðsfélagarnir að fylla í skarðið. Við getum spjarað okkur án Gareth Bale," sagði Gylfi. „Það verður ekki auðvelt að spila án Gareth enda er hann búinn að spila frábærlega á tímabilinu en það verður bara einhver að koma sterkur inn í staðinn," sagði Gylfi ennfremur. Gylfi hefur spilað vel eftir áramót og er búinn að vinna sér sæti í byrjunarliði Tottenham eftir langa dvöl á bekknum. „Ég tel að ég sé farinn að spila minn besta bolta þótt að ég sé ekki að spila mína uppáhaldsstöðu. Ég er að spila á kantinum en meðan ég er að spila þá er ég ánægður," sagði Gylfi. „Það hjálpar mikið að ná að spila nokkra leiki í röð því þá kemstu í takt og sjálfstraustið eykst," sagði Gylfi.
Enski boltinn Evrópudeild UEFA Mest lesið „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Körfubolti Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport „Spiluðum mjög vel í dag“ Enski boltinn Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Körfubolti Dómara refsað vegna samskipta við Messi Fótbolti Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Fótbolti Sigur Ungverja á Ítalíu dugði skammt Körfubolti Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus Fótbolti Góður útisigur hjá lærisveinum Guðmundar Handbolti Dagskráin í dag: Lengjubikar kvenna, úrvalsdeildin í keilu og NBA Sport Fleiri fréttir „Spiluðum mjög vel í dag“ „Við þurfum annan titil“ Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah „Eigum skilið að finna til“ Asensio hetjan í endurkomu Villa Öruggur sigur Spurs og Wolves vann óvænt Bitlausu liði Arsenal mistókst að minnka forskot Liverpool Moyes: Greinilegt peysutog en við áttum að vera komnir í 3-0 Amorim: Við þurfum að lifa þetta tímabil af Hætti við að dæma víti og United slapp með jafntefli Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham Brentford bætti við algjöra martröð Leicester Ratcliffe þekkti ekki fyrirliða kvennaliðsins Arsenal aldrei aflað meira en tapaði samt þremur milljörðum Hafa verið þrettán ár af lygum „Frábær leikur en ég er ekki ánægður með úrslitin“ Jafntefli niðurstaðan í frábærum leik á Villa Park Kostaði Man. United meira en 2500 milljónir að reka Ten Hag og Ashworth Casemiro fer ekki fet Arsenal lét heitasta framherjann í frönsku deildinni fara fyrir „slikk“ Antony með fleiri mörk í febrúar en allt Man. United liðið Segir að Amorim þurfi 2-3 félagaskiptaglugga til að laga hópinn Sektaðir fyrir að öskra á Michael Oliver Arnór laus úr prísund Blackburn Biður til Guðs að Arsenal taki titilinn Sjá meira