Afríka er brandari sem er löngu búinn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. maí 2013 10:00 Kjartan Atli í leik með Stjörnunni. Mynd/Daníel
Kjartan Atli Kjartansson, leikmaður körfuboltaliðs Stjörnunnar og knattspyrnuliðs Álftaness, segir að leikmenn neðri deilda knattspyrnunnar kvíði því að mæta liði Afríku. Þetta segir hann í pistli sem birtist á vefsíðunni 433.is og má lesa í heild sinni hér. Hann hefur pistilinn á þessum orðum: „Ég ætla að segja það sem mörgum leikmönnum í neðri deildunum langar að segja: Þessi brandari með knattspyrnulið Afríku er löngu búinn. Málið er fullreynt og þeir eru, því miður, búnir að brenna langflestar brýr að baki sér. Óheiðarleg framkoma, grófur leikur og endalausar ásakanir um kynþáttafordóma gera leikina gegn Afríku þá leiki sem marga leikmenn í neðri deildunum kvíðir mest fyrir.“ Kjartan Atli lék með liði Álftaness gegn Afríku á Leiknisvellinum fyrr í þessari viku. Álftanes vann, 5-0, og Kjartan Atli skoraði eitt markanna eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Hann segir leikmenn stundum ekki vita hvort þeir beinin í löppunum muni haldast heil eftir 90 mínútna leik gegn Afríku. En það versta við að spila gegn liðinu sé framkoma leikmannanna. „Dónaskapurinn er yfirgengilegur. Um leið og eitthvað fer ekki samkvæmt plani þjálfara liðsins verður allt vitlaust.“ „Leikmenn Afríku grípa svo gjarnan í orðið „kynþáttafordómar“. Það er trompið sem þeir hafa uppi í erminni; ef dómarinn dæmir eitthvað á þeirra hlut, eða ef andstæðingur segir eitthvað við þá, þá eru það kynþáttafordómar. Þvílík og önnur eins gjaldfelling á annars mikilvægu hugtaki. Víða um heim þurfa milljónir að líða fyrir kynþáttafordóma á degi hverjum. Að ætla að grípa til þessa hugtaks í knattspyrnuleik í neðri deildunum, þegar dómarinn dæmir eitthvað gegn þeim, er sorglegt í meira lagi.“Pistill Kjartans Atla í heild sinni.
Íslenski boltinn Mest lesið Kvartar undan Man. City við Evrópusambandið Enski boltinn Tryggvi þarf að taka sig á í skólanum Körfubolti Gera grín að Jürgen Klopp Fótbolti Auglýsa leik kvöldsins með minnsta skilti sem fyrirfinnst Körfubolti Garnacho þarf að splæsa máltíð á allt liðið Enski boltinn Víkingar skipta um gír Íslenski boltinn Afar óvænt endurkoma Alberts gegn Þóri Fótbolti Segir Trump að hætta þessu bulli varðandi Kanada Fótbolti Líklegast að Ísland mæti Doncic á EM og spili í Póllandi Körfubolti Tvær tillögur um að fjölga karlaleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Víðir með Vestmannaeyingum í sumar Daði Berg frá Víkingi til Vestra Víkingar skipta um gír Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Atli Sigurjóns framlengir við KR Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ ÍA fær Baldvin frá Fjölni Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Gylfi orðinn Víkingur Valsmenn settu sex gegn Grindavík Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Býst við Grikkjunum betri í kvöld „Þetta er einstakur strákur“ Barðist við tárin þegar hann kvaddi Eru þetta stærstu félagsskiptin síðan Pétur fór í KR? „Einbeiti mér að allt öðru en einhverri dramatík á Íslandi“ Sjá meira