Jón Margeir setti Evrópumet og nældi í silfur Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 12. ágúst 2013 23:22 Jón Margeir með verðlaun sín. Mynd/Sverrir Gíslason
Jón Margeir Sverrisson, sundmaður úr Fjölni/Ösp, vann til silfurverðlauna í 200 metra skriðsundi í flokki S14 á HM í sundi fatlaðra í Montreal í nótt. Jón Margeir bætti sinn besta tíma og setti Evrópumet og Íslandsmet á tímanum 1:59,30 mínútum. Hann varð tæpri sekúndu á eftir sigurvegaranum Daniel Fox frá Ástralíu. Ástralinn, sem setti heimsmet í greininni í apríl, hafði sigur á 1:58,45 mínútum og var hársbreidd frá heimsmetinu, 1:58,42 mínútum. Jón Margeir og Daniel Fox áttu báðir frábæran endasprett í úrslitunum. Refurinn frá Ástralíu gerði frábærlega því hann sneri fimmti eftir 50 metra. Hann sótti hins vegar í sig veðrið og átti frábæra síðustu fimmtíu metra líkt og Jón Margeir. Á Ólympíumótinu í London fyrir ári var það Jón Margeir sem hafði betur eftir æsilegan endasprett. Nú hafði ástralski refurinn hins vegar betur. Suður-Kóreumaðurinn Wonsang Cho hafnaði í þriðja sæti líkt og í London síðastliðið sumar. Sundið var í beinni útsendingu hér á Vísi.Jón Margeir, Fox og Cho.Mynd/Sverrir Gíslason
Sund Mest lesið Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham Enski boltinn Áhugi Íslendinga heillaði: Ísak hafnaði Noregi til að herma eftir afa Handbolti ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Íslenski boltinn Brentford bætti við algjöra martröð Leicester Enski boltinn Frakkar á toppinn fyrir slaginn við Ísland Fótbolti Mögnuð tilþrif Viktors Gísla á topplista EHF Handbolti Jón Dagur í frystiklefa í Berlín Fótbolti Gömlu Haukafélagarnir í stóru hlutverki í sitt hvoru landinu Handbolti Elísabet grátlega nærri því að fella heimsmeistarana í fyrsta leik Fótbolti „Ég hafði trú á því að þær gætu gert þetta betur“ Fótbolti Fleiri fréttir Dagskráin í dag: Golf, enskur fótbolti og tvö lið í vanda í NBA Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Áhugi Íslendinga heillaði: Ísak hafnaði Noregi til að herma eftir afa Frakkar á toppinn fyrir slaginn við Ísland Brentford bætti við algjöra martröð Leicester Gömlu Haukafélagarnir í stóru hlutverki í sitt hvoru landinu Elísabet grátlega nærri því að fella heimsmeistarana í fyrsta leik „Ég hafði trú á því að þær gætu gert þetta betur“ Jón Dagur í frystiklefa í Berlín Uppgjörið og viðtöl: HK - KA 33-29 | HK steig stórt skref í átt að sæti í úrslitakeppninni Mögnuð tilþrif Viktors Gísla á topplista EHF Ruglaðist á Tramadol og Toradol og féll á lyfjaprófi Uppgjörið: Sviss - Ísland 0-0 | Engin flugeldasýning í fyrsta leik Slagur um stól formanns KKÍ Dagný byrjar á sama stað og hún endaði síðast Littler pirraður á bauli áhorfenda og bað þá um að róa sig LeBron með fjörutíu stig í fjarveru Doncic: „Hann storkar lögmálunum“ Zlatan segir skammarverðlaunin verðskulduð Tveir nýliðar úr Haukum í landsliðinu Chelsea til Kaupmannahafnar og Víkingsbanar mæta Alberti Sjáðu markið: Tók Orra enga stund að stimpla sig inn Orri mætir Manchester United í Evrópudeildinni Nasistakveðjur, Ísrael og Palestína á Evrópukvöldi Liverpool mætir PSG og Madrídarliðin eigast við Spilaði fullkominn leik í beinni Hrósa Ísaki fyrir þroska, hreinskilni og auðvitað að vera góður í fótbolta Dregið í Meistaradeildinni í dag: Gætum fengið svakalega nágrannaslagi „Vissi ekki hvað þessi sársauki þýddi“ Fær ekki að spila á Íslandi vegna gamals dóms: „Ekki ógn við þjóðina“ Sjá meira