Nóbelsverðlaunahafi með fyrirlestur í Reykjavík Frosti Logason skrifar 9. september 2013 11:41 Strengjafræði, skammtafræði og afstæðiskenningin. Þetta er allt saman djúsí stöff.
Harmageddon veitti því athygli að bandaríski Nóbelsverðlaunahafinn Dr. David Gross mun halda fyrirlestur í Reykjavík á morgun. David er prófessor í kennilegri eðlisfræði við Kavli-stofnunina í Kaliforníuháskóla í Santa Barbara í Bandaríkjunum. Nokkur spenna ríkir á meðal vísindanörda fyrir viðburðinum sem sagður er vera sannkallaður hvalreki fyrir áhugasama.„Þetta er ótrúlega spennandi af því að þarna er verið að ræða um alheiminn okkar í smæsta mögulega skala. Við erum að tala um grunngerð alheimsins eins og hann leggur sig, grundvöllinn að öllu efni sem er í kringum okkur,“ segir Sævar Helgi Bragason, formaður stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness og sérstakur tengiliður Harmageddon inn í hinn margslungna heim vísinda og þekkingar. Sævar segir fólk vera sérlega áhugasamt um þennan fyrirlestur þar sem að þarna verði til umfjöllunar rannsóknir sem kalla má þær heitustu í vísindaheimium í dag. Rannsóknir sem snúa að stóra sterkeindahraðlinum í Sviss (e. Large Hadron Collider) sem allir eru að tala um og leit vísindamanna að Higgs bóseindinni. „Svo er annað sem er spennandi í þesu líka, það er strengjafræðin (e. String Theory) sem sumir vísindamenn telja að gæti samþætt skammtafræðina og afstæðiskenninguna, tvær megin stoðir nútíma eðlisfræði. Þetta er allt þetta helsta og það sem er mest spennandi í þessum geira í dag. Maður fer ekki að missa af þessu,“ segir Sævar spenntur að lokum. Fyrirlesturinn fer fram á ensku í hátíðasal Háskóla Íslands á morgun, þriðjudaginn 10. september, klukkan 15:30. Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir. Hér fyrir neðan má sjá skemmtilegt viðtal við David Gross frá árinu 2009.
Harmageddon Mest lesið Sannleikurinn: Feitasti auminginn okkar byrjar um áramótin Harmageddon Hefur fengið múslima til þess að endurhugsa afstöðu sína Harmageddon Freysi með Stjána Stuð og Soffíu Harmageddon Sannleikurinn: Stofnfundur félags fólks með ofvirkni fór úr böndunum: Stofnuðu 7 önnur félög Harmageddon Daft Punk koma fram á Grammy verðlaununum á næsta ári Harmageddon Söngvari Blink 182 hættur í hljómsveitinni Harmageddon Dreymir þig Svik, Harm og dauða? Harmageddon Púlsinn 15.ágúst 2014 Harmageddon Mega konur hafa fantasíur? Harmageddon Fór á fyllerí með David Grohl í tíunda bekk Harmageddon
Sannleikurinn: Stofnfundur félags fólks með ofvirkni fór úr böndunum: Stofnuðu 7 önnur félög Harmageddon
Sannleikurinn: Stofnfundur félags fólks með ofvirkni fór úr böndunum: Stofnuðu 7 önnur félög Harmageddon