Rúmenskur ofurtrukkur Finnur Thorlacius skrifar 17. október 2013 14:45
Rúmenar hafa ekki verið ýkja þekktir fyrir framleiðslu bíla, en þó eru Dacia bílar framleiddir þar í landi. Á bílasýningu um daginn sýndi rúmenski bílaframleiðandinn Ghe-O þennan bíl sem þeir kalla Rescue sem vísar til þeirra nota sem hann er ætlaður til. Þessi ofurtrukkur er nefnilega fær um að fara um býsna erfiðar slóðir. Hann er engin smásmíði og er 60 sentimetrum breiðari en Hummer H1, en vegur samt 230 kílóum minna. Hann getur tekið 11 farþega og ef bjarga þarf fleirum fylgir honum sleði sem draga má á vatni, snjó, eða hvaða undirlagi sem er. Bíllinn er afar hæfur í utanvegaakstri, er með læst drif og 340-500 hestafla bensínvélar eða 218-304 hestafla dísilvélar, allt eftir þörfum kaupenda. Eitt það magnaðasta við bílinn er að honum fylgja flotholt sem sett eru utanum dekkin og gera honum kleift að „sigla“ á vatni. Hann er einnig með stóra vatnstanka og öflugar dælur til að kljást við skógarelda. Ekki fylgir sögunni hvað gripurinn kostar.
Mest lesið Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Innlent Logi fordæmir ummæli Jóns Gnarr um Vísi Innlent Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent Telja sig vita hvernig maðurinn lést Innlent „Algjört þjófstart á sumrinu“ Innlent Létu Cassie lesa upp kynferðisleg skilaboð til Diddy Erlent Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Erlent Hestamenn láta tæpa hálfa milljón stöðva sig Innlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Borgin rukkar hestamenn og þeir hætta við reiðina Innlent