Sushi pizza fyrir fjóra í forrétt
Sushi pizza
botn 2.stk
nori blöð
100 gr sushi grjón (soðin)
Tempura deig (fæst sem duft í betri búðum)
Aðferð: Setjið grjónin á annað nori blaðið þannig að það er alveg hulið. Setjið síðan hitt nori blaðið ofaná grjónin og pressið létt með höndunum. Skerið síðan nori blaðið í fjóra hluta og dýfið í tempura deigið og djúpsteikið.
Bleikju-tartar á sushi pizzu
100 gr bleikja fínt skorin
1 tsk kryddjurtamauk ( koriander,steinselja,basilika)
1 tsk mango
chilli sulta ½ tsk
hvítlauksolía
Öllu blandað saman og sett ofan á djúpsteikta sushi pizzu botninn. Svo er pizzan toppuð með chili majó og sætri soyasósu, vorlauk og rauðri papríku.

Ís með rúgbrauðsmulningi
Rúgbrauð skorið í sneiðar og síðan í mjóar lengjur. Sett á ofnplötu og í ofn sem er ca. 100 gráðu heitur og þurrkað í klukkutíma. Rúgbrauðslengjurnar síðan settar í matvinnsluvél og blandað þar til orðið að mulningi.
Að lokum sett út á ísinn. Einnig má blanda mulningnum saman við ísinn og setja örlítið af þeyttum rjóma.
Allt eftir smekk. Einnig má setja nokkrar lengjur til hliðar og bræða dökkt súkkulaði og dýfa svo þurrkuðum rúgbrauðslengjunum í súkkulaðið og borða með ísnum.