„Við erum í samstarfi við Raven Design sem gerir óróa með öllum íslensku jólasveinunum, jólakettinum, Grýlu og Leppalúða og fylgir einn órói hverju svari,“ útskýrir Guðmundur Rúnar sem sér fyrir sér að fleiri gætu haft hag af slíku samstarfi.
Kassarnir eru aðallega hugsaðir fyrir erlenda ferðamenn og er megnið af bréfunum frá þeim. Langflest eru skrifuð á ensku. „Íslendingum er þó meira en velkomið að senda bréf og er eitthvað um þau inni á milli,“ segir Guðmundur. Fólk er beðið um að skrifa nafn og heimilisfang viðtakandans í hástöfum og svo getur það sent jólasveinunum litla orðsendingu. Bréfin kosta 1.600 krónur og fást í Litlu jólabúðinni á Laugavegi, í Viking Shop við göngugötuna á Akureyri og í Rammagerðinni í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Svarbréfin eru stöðluð en nafn viðtakanda og viðkomandi jólasveins er handskrifað. Svörin eru flest á ensku en Íslendingum er svarað á móðurmálinu.

Guðmundur segir hvert bréf segja litla sögu og nefnir dæmi. „Ég var rétt í þessu að lesa eitt frá lítilli hnátu sem bað um hest eða hund en vildi alls ekki fá sendan kött eins og síðast. Þá las ég nýlega frásögn konu sem hafði ætlað til landsins með eiginmanninum. Hann hafði hins vegar látist í millitíðinni. Hún kom því ein og niðurbrotin en fékk frábærar móttökur og átti hér góðan tíma þrátt fyrir allt.
Guðmundur segir verkefnið aðeins í startholunum. „Við gerum ráð fyrir að svara 30-70 þúsund bréfum á næsta ári.“