
Viðtal: Takast á við bróðurmissinn
Bræðurnir Mikael og Rolf Tryggvasynir sem misstu bróður sinn Pétur Róbert Tryggvason í flugslysinu við Hlíðarfjallsveg takast nú á við bróðurmissinn.
Rolf missti ekki bara bróður, heldur náinn vin og samstarfsfélaga hjá slökkviliði Akureyar.
Reiðin er ekki efst í huga þeirra bræðra vegna slyssins en þeir báru fullkomið traust til flugmanna Mýflugs sem stýrðu Beechcraft 200 vélinni TF-MYX þegar hún fórst 5. ágúst í fyrra.
Bræðurnir hafa sem kunnugt er farið fram á lögreglurannsókn á slysinu því þeir treysta ekki rannsóknarnefnd samgönguslysa eftir að bráðabirgðaskýrsla nefndarinnar kom út.
Þorbjörn Þórðarson ræddi við bræðurna á Akureyri og má nálgast viðtalið í meðfylgjandi myndskeiði.
Tengt efni: Fréttaskýring um flugslysið við Hlíðarfjallsveg
Tengdar fréttir

Myndband af flugslysinu við Hlíðarfjallsveg
Fréttastofa 365 birtir nú í fyrsta sinn opinberlega myndband sem sýnir þegar TF-MYX sjúkraflugvél Mýflugs brotlendir á akstursíþróttabraut við Hlíðarfjallsveg á Akureyri hinn 5. ágúst 2013. Tveir létust í flugslysinu. Fréttastofan metur það svo að birting myndbandsins eigi erindi við almenning m.a vegna forvarnar- og upplýsingagildis.

Óvíst að ríkið krefji Mýflug um bætur vegna 40 milljóna tjóns á sjúkrabúnaði
Ríkið greiðir 40 milljónir króna fyrir sjúkrabúnað í nýja sjúkraflugvél Mýflugs. Félagið bar ábyrgð á búnaði sem ríkið átti og eyðilagðist í flugslysinu í ágúst. Óljóst er hvort ríkið geri bótakröfu á Mýflug vegna tjónsins.

Könnun Mýflugs: „Ekkert ábótavant sem þarf að bregðast við“
"Við getum ekki rannsakað flugslys. Við höfum enga þekkingu til að gera slíkt og svo sem ekki trúverðugur aðili til þess heldur,“ segir flugöryggisfulltrúi Mýflugs.

Eins og kýrnar á vorin hjá Mýflugi
Menningin meðal starfsmanna Mýflugs virðist vera fremur frjálsleg varðandi flug sem ekki tengist hefðbundnum verkefnum. Framkvæmdastjórinn segir hins vegar starfsumhverfið í besta lagi.

Læknir óttaðist um líf sitt og spáði að sjúkraflug Mýflugs myndi enda illa
Fyrrverandi læknisfræðilegur forsvarsmaður sjúkraflugs á Akureyri kveðst hafa gert margar athugasemdir við sjúkraflug Mýflugs. Hann hafi verið hætt kominn í lágflugi Leifs Hallgrímssonar, framkvæmdastjóra Mýflugs.

Viðkvæmt en brýnt
Banaslys í flugi er eðli málsins samkvæmt viðkvæmt mál. Það þarf að sýna minningu látinna virðingu og tillitssemi gagnvart aðstandendum. Það má hins vegar ekki koma í veg fyrir að dregið verði rækilega fram í dagsljósið hvað olli hinu skelfilega slysi – til þess að hægt sé að læra af því og koma í veg fyrir að slíkt endurtaki sig.

Segja tvöfalt ofris hafa valdið því að flugmenn misstu stjórn
Flugsérfræðingar segja að vél Mýflugs gæti hafa ofrisið í beygju sem varð til þess að hún brotlenti við Hlíðarfjallsveg. Bróðir sjúkraflutningamannsins sem lést í slysinu segist bera fullt traust til flugmanna vélarinnar, en þeir voru báðir reynslumiklir og virtir flugmenn.

Ísland í dag: Fréttaskýring um flugslysið við Hlíðarfjallsveg
Í meðfylgjandi myndskeiði má nálgast fréttaskýringu sem birtist í Íslandi í dag á Stöð 2 í kvöld um flugslysið á akstursíþróttabrautinni við Hlíðarfjallsveg á Akureyri 5. ágúst síðastliðinn. Fjölskylda eins þeirra sem lést í slysinu hefur efasemdir um rannsókn rannsóknarnefndar samgönguslysa og hefur farið fram á lögreglurannsókn á slysinu.

Missti soninn í flugslysi: „Af hverju megum við ekki sjá?“
Kristín Dýrfjörð, móðir Sturlu Þórs Friðrikssonar sem fórst í flugslysi í Skerjafirði árið 2000, segir birtingu myndbands af flugslysinu við Hlíðarfjall mikilvæga.

„Beygjan að brautinni var alltof skörp“
Bróðir Péturs Tryggvasonar sem fórst í flugslysi á Akureyri í ágúst segir kröfu um rannsókn byggjast á hagsmunum tveggja barna sem Pétur skilur eftir sig.

Vilja rannsókn á Hlíðarfjallsslysinu
Bróðir sjúkraflutningamanns sem fórst er sjúkraflugvél brotlenti á kappakstursbraut á Akureyri í ágúst hyggst krefjast opinberrar rannsóknar á slysinu. Flugstjórinn lést einnig í slysinu en aðstoðarflugmaðurinn, sem varaði hann við því að flogið væri allt

Ostaflutningar töfðu sjúkraflug
Sjúklingur er sagður hafa þurft að bíða í klukkustund á Egilsstöðum eftir sjúkraflugi á vegum Mýflugs en flugvélin tafðist þar sem verið var að flytja hálft tonn af osti fyrir Bónus.