Forsætisráðherra Úkraínu segir af sér Samúel Karl Ólason skrifar 28. janúar 2014 11:11 Mykola Azarov, Forsætisráðherra Úkraínu, sagði af sér embætti í morgun. Vísir/AP Images
Mykola Azarov, Forsætisráðherra Úkraínu, sagði af sér embætti í morgun. Með afsögn sinni vildi forsætisráðherrann hjálpa til við að koma á friðsamlegum enda deilunnar sem staðið hefur yfir í tvo mánuði. Þá hefur þing Úkraínu fellt úr gildi lög sem takmarka rétt fólks til mótmæla. Þrír mótmælendur hafa látist í átökum við lögreglu eftir að hin umdeildu lög voru sett á fyrr í mánuðinum. Forseti landsins, Viktor Yanukovych á eftir að samþykkja afsögn Azarov, en það virðist eingöngu vera formsatriði. Forsetinn bauð Arseniy Yatsenyuk, einum af leiðtogum stjórnarandstöðunnar, forsætisráðherrastólinn í síðustu viku. Hann hafnaði þó boðinu í gær. Að auki boðaði forsetinn að tugir mótmælenda yrðu náðaðir ef mómælendur yfirgæfu göturnar og þær byggingar sem búið er að yfirtaka. Afsögn forsætisráðherrans er ekki líkleg til að stöðva mótmælin þar sem mótmælendur hafa einnig farið fram á afsögn forsetans og að kallað verði til nýrra kosninga.
Úkraína Mest lesið Fordæmalaus náðun Bidens Erlent Hyggjast fljúga þotunni yfir Reykjavík í hádeginu Innlent „Fullt af augljósum árekstrum þarna“ Innlent Getur ekki hugsað til þess að þurfa að loka aftur eftir tvo mánuði Innlent Hafnað í fyrsta sinn í tuttugu ár Innlent Vatnsleki í Garðheimum Innlent Gekk betur en óttast var Innlent Lifir grenitréð í Ölfusá af krapastífluna? Innlent „Þessi aðgerð lukkaðist vel“ Innlent Búið að opna fyrir tilnefningar til manns ársins 2024 Innlent Fleiri fréttir Fordæmalaus náðun Bidens Mörg hundruð vígamenn frá Írak til aðstoðar Assad-liða Vilja vara aðra við örlögum dóttur sinnar í Laos Játar að hafa ekki afl til að taka aftur hernumdu svæðin Ríkisstjórnin og Barnier í hættu vegna fjárlaga Biden náðar son sinn Kynlífsverkafólk í Belgíu á nú rétt á fæðingarorlofi og lífeyri Ungur maður særði tvennt í skotárás á Grænlandi Hafa náð tökum á hálfri Aleppo og fjölda þorpa Assad-liðar gefa hratt eftir í Aleppo Síðasta heimsókn forseta fyrir opnun Notre Dame Tjadar og Senegalar segja Frökkum að koma sér Reyna að flytja óstöðugt andefni með vörubílum Njósnarar Rússa ræddu morð eða rán á blaðamanni Yfirvöld í Laos banna sölu Tiger vodka og viskís Vilja aðkomu Kínverja að rannsókn á skemmdum sæstrengjum Pútín hótar afdrifaríkum árásum á Kænugarð Grænlendingar fagna nýjum alþjóðaflugvelli Segja að endurtaka verði kosningarnar umdeildu í Georgíu Sækja óvænt og hratt að Aleppo Segir skemmdarverk Rússa í Evrópu geta leitt til átaka Haldlögðu metmagn af kókaíni í sameiginlegri aðgerð 62 ríkja Rússar gera umfangsmiklar árásir á orkuinnviði Úkraínu Íranir hóta því að koma sér upp kjarnorkuvopnum Telja sig hafa fundið vísbendingu í máli D.B. Cooper Forsetaefni í Georgíu spilaði áður fyrir Manchester City Hinir 50 hafi allir verið „herra meðal-Jón“ Fangaskipti milli Bandaríkjanna og Kína Vopnahléið heldur en íbúar Gasa telja sig svikna Sendir Trump tóninn og hótar eigin tollum Sjá meira