Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, og Dorrit Moussaieff, forsetafrú, hafa þegið boð Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og Alþjóðaólympíunefndarinnar um að vera viðstödd upphaf Vetrarólympíuleikanna í Sochi.
Forsetahjónin munu sækja móttökuathöfn fyrir íslensku keppendurna, setningarhátíð leikanna og fylgjast með keppnisgreinum fyrstu dagana.
Jafnframt mun forseti eiga fundi með nokkrum þjóðarleiðtogum sem einnig sækja leikana.

