Matur

Sjávarréttapasta og berjabomba í Höfðingjum heim að sækja

Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir

Uppskriftir úr fyrsta þætti Höfðingja heim að sækja í stjórn Evu Laufeyjar Kjaran Hermannsdóttur er hægt að nálgast hér að neðan.



„Það er tilvalið að bjóða sumarið velkomið með þessu ansi ljúffenga sjávarréttapasta. Það tekur enga stund að elda þennan rétt og er hann afskaplega bragðmikill og góður. Berið hann fram með parmesan osti og nóg af honum.“

Sjávarréttapasta

Uppskrift:

400 g svart spagettí

Salt og pipar

Ólífuolía  

Smjör

4 – 5 hvítlauksrif, pressuð

1 chili aldin, smátt skorið

300 g humar

300 g risarækja

Börkur (rifinn) og safi úr 1 sítrónu

1 – 2 dl hvítvín

1 – 2 dl pastasoð

40 – 50 g klettasalat

Rifinn Parmesan ostur



Aðferð:

  1. Sjóðið pastað samkvæmt upplýsingum á pakkningu. Geymið hluta af pastavatninu og hellið síðan öllu vatninu frá.

  2. Hitið smjör og olíu í potti við vægan hita, setjið saxaða hvítlaukinn og chili út í pottinn. Steikið í smá stund eða þar til hvítlaukurinn fer að gyllast. Bætið risarækjum og humrinum í pottinn og eldið sjávarréttina í 2 –3 mínútur. Hellið hvítvíninu og pastasoðinu út í pottinn og leyfið þessu að malla í 2 mínútur.

     
  3. Blandið sítrónuberki og safa saman við.

  4. Setjið spagettíið í pottinn og blandið öllu mjög vel saman þar til sósan þekur pastað. Takið af hitanum. Setjið klettasalatið saman við og setjið pastaréttinn í skál eða fat.

  5. Saltið og piprið eftir smekk.

  6. Berið fram með parmesan osti.

Bragðmikil berjabomba

„Það er fátt sem slær góðum eftirréttum við. Þessi einfalda berjabomba á eftir að koma ykkur á óvart. Sannkölluð berjabomba fyrir sælkera.“

Uppskrift:

1 askja jarðarber

1 askja bláber

1 dl balsamikedik

1 - ½ dl hlynsíróp

Vanilluís


Aðferð:

Skerið berin í tvennt, raðið þeim í eldfast mót. Blandið balsamikedikinu og hlynsírópinu saman og hellið yfir berin. Setjið berjablönduna inn í ofn við 180°C í 15 – 20 mínútur. Berin eru dásamleg með góðum vanilluís eða rjóma. 








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.