Matur

Uppskrift - svona steikir þú fisk

Ellý Ármanns skrifar
myndir/pjétur

Kári Þorsteinsson yfirkokkur á Kol Restaurant við Skólavörðustíg gefur lesendum Lífsins ljúffenga fiskuppskrift sem auðvelt er að matbúa heima og snilldar ráð sem allir ættu að kynna sér. Að sögn Kára leggur eldhúsið á Kol mikið uppúr „comfort“ og „klassísku twisti“ þegar kemur að matnum en þegar kemur að fiskréttum þá lumar Kári á góðum ráðum.

mynd/pjétur

Uppskrift

400gr þorskhnakkar

200gr nípa*

300gr mjólk

4 stk svartrót

100gr rauð steinlaus vínber

10msk hvítvíns edik

10msk sykur

6msk salt

40gr heslihnetur



* Spurður hvað nípa er svarar Kári: „Nípa er grænmeti stundum kallað steinseljurót en það er misskilingur það er annars konar grænmeti.“

Aðferð:


Nípa er skræld og skorin í ca 3cm x 3cm teninga svo sett í pott með tvöfalt meiri mjólk en nípu. Soðið þar til meyrt þá sett í blender og maukað þar til fínt, smakkað til með salti og sítrónu djús.

Svartrótin er skræld og skolið, þetta þarf að gerast fljótt annars er hætta á að hún oxiterist (verði brún) síðan er hún skorin í helming og sett í pönnu ásamt smá smjöri, vatnið ætti næstum því að hylja svartrótina.

Sett yfir á medium hita, þá síður vatnið niður og verður að engu, þá ætti svartrótin að vera elduð og byrjar að brúnast fallega í smjörinu. Vínberin eru pilluð að stilknum og dressuð með salti, sykri og smá ediki og þurrkuð í ofni við 110 gráður í sirka 2 klst.

Heslihneturnar eru brúnaðar létt í ofni við 160 gráður í sirka 6 mínútur.

Hér útbýr Kári dásamlegan þorskréttinn.mynd/pjétur

Mikilvægt að hita pönnuna vel

„Þegar steikja skal fisk skaltu hita pönnuna vel, þar til það rýkur úr henni þá er olíu bætt í og krydduðum fisknum. Ef pannan er ekki nógu heit þegar þú setur fiskinn í lækkar hitinn í henni svo mikið að þú nærð ekki að steikja fiskinn stökkan. Fiskurinn skal vera eldaður ca 80% á annari hliðinni, best er að steikja fiskinn á roð-hliðinni til að byrja með þannig helst hann vel saman.“

Settu smjör á pönnuna áður en þú snýrð fisknum við

„Gott er að bæta smá smjöri í pönnuna rétt áður en fisknum er snúið við. Til að vita hvort fiskurinn sé eldaður er gott að stinga mjóum prjón í hann og ef hann rennur í gegn án fyrirstöðu er hann klár,“ útskýrir Kári og bætir við:

„Þegar skal velja skal þorsk eða annan hvítan fisk í fiskborði sem hefur verið roðflettur og beinhreinsaður skal tekið eftir litnum á honum, hann ætti að vera skínandi hvítur og laus við alla slepju, stinnur og nánast lyktarlaus.„








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.