Rólegt í Þórisvatni en mikil veiði í Kvíslaveitum Karl Lúðvíksson [email protected] skrifar 4. júlí 2014 13:21
Þórisvatn og Kvíslaveitur hafa lengi verið vel sótt af veiðimönnum sem kunna vel við hálendiskyrrðina og það skemmir ekki fyrir að veiðin getur oft verið fantagóð. Þórisvatn hefur þó verið heldur rólegt í sumar en fáar fréttir borist af góðum aflabrögðum það sem komið er af sumri. Annað er uppá tengingum í Kvíslaveitum en flestir veiðimenn sem við höfum heyrt í sem veitt hafa á svæðinu í sumar hafa gert mjög góða veiði. Það þarf að vísu að leita svolítið að fiskinum og þess vegna eru þeir sem kunna á svæðið komnir á lagið með að stoppa ekki lengur en 1-2 tíma á hverjum stað, nema þegar góður staður er fundinn þá stoppa menn auðvitað lengur. Einn af vinsælustu stöðunum er útfallið sjálft rétt fyrir ofan Versali en þar hefur lítið veiðst í sumar. Innar á svæðinu hefur veiðin verið mun betri og algengt að heyra tölur frá 20-30 fiskum á stöngina eftir daginn. Svæðið er frábært til fluguveiða og getur fiskurinn verið mjög vænn en algengar stærðir eru 3-5 pund og þeir stærstu fara auðveldlega í 10-12 pund. Þess ber þó að gæta að vegurinn upp eftir er afleitur og alls ekki fær nema þokkalegum jeppum. Bestu flugurnar eru Nobblerar, Black Ghost, stórar svartar púpur og það eru líka margir sem hafa veitt vel á Sunray Shadow á sökklínu og strippað hratt inn. Tökurnar á hana með þessari veiðiaðferð eru oft svakalega sterkar.
Stangveiði Mest lesið Góð rjúpnaveiði um allt land í gær Veiði SVFR: Vefsalan hafin Veiði 100% meiri laxveiði en í fyrra Veiði RISE fluguveiði- hátíðin fer fram 14. apríl Veiði Vatnsleysi gerir laxveiðina erfiða Veiði Fín veiði í nettustu á landsins Veiði Dræmt á efstu svæðum Blöndu Veiði Blanda komin í 3561 lax Veiði Þrjár vikur í rjúpnaveiðina Veiði Opnunarhollið í Norðurá auglýst til sölu Veiði