Þjóðkirkjan fær rúmum 33 milljónum króna meira á fjárlögum ársins 2015 en hún fékk árið 2014, að frátöldum almennum verðlagsbreytingum.
Heildarfjárveiting til Þjóðkirkjunnar árið 2015 verður 1.507,9 milljónir króna samanborið við 1.474,7 milljónir árið 2014.
Í fjárlagafrumvarpinu segir að gert sé ráð fyrir að „rekstrargjöld lækki um 27,7 m.kr. á næsta ári að frátöldum verðlagshækkunum sem nema 60,9 m.kr.“
Varðandi lækkun rekstrargjalda er gerð tillaga um 6 milljón króna lækkun tímabundins framlags til fræðslumiðstöðvar og gistihúss við Skálholtsstað. „Hins vegar er lögð til 21,7 m.kr. lækkun vegna aðhaldsaðgerða í ríkisútgjöldum.“
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að 10,5 milljónir króna fari til annarra trúfélaga.
Framlög til Þjóðkirkjunnar hækkuð
Atli Ísleifsson skrifar
