Óskað eftir frekari gögnum í máli hjúkrunarfræðingsins Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 4. september 2014 11:15 Frá fyrirtöku málsins hinn 24.júní. vísir/pjetur
Fyrirtaka í máli hjúkrunarfræðingsins sem ákærður er fyrir manndráp af gáleysi fór fram öðru sinni í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Óskað var eftir frekari gögnum, meðal annars sjúkragögnum hins láta. Boðað var til milliþinghalds þar sem Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, mun bera vitni í málinu og lýsa yfir afstöðu spítalans. Aðalmeðferð málsins fer fram í Héraðsdómi Reykjavíkur á næsta ári. Hjúkrunarfræðingurinn lýsti yfir sakleysi sínu við fyrirtöku málsins hinn 24.júní síðastliðinn og gerði Landspítalinn hið sama. Þá hafnaði hjúkrunarfræðingurinn bótakröfu líkt og lögfræðingur spítalans fyrir hönd hans. Ríkissaksóknari lagði fram ákæru á hendur Landspítalanum og hjúkrunarfræðingi gjörgæsludeildar í maí síðastliðnum fyrir manndráp af gáleysi. Er hjúkrunarfræðingurinn sakaður um röð mistaka sem dró sjúkling til dauða árið 2012. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknar spítalans ollu margir samverkandi þættir mistökunum, en það er algengasta ástæða mistaka í heilbrigðiskerfinu. Aldrei fyrr hefur starfsmaður Landspítalans, né Landspítalinn, verið ákærð fyrir atvik af þessu tagi. Landspítalinn úthlutaði hinum ákærða lögmanni ásamt því að hafa sinn eigin lögmann. Landspítalinn standi þó með hinum ákærða. Mistök hjúkrunarfræðingsins áttu sér stað á kvöldvakt sem hún vann í beinu framhaldi af dagvakt. Hjúkrunarfræðingnum er meðal annars gefið að sök að hafa láðst að tæma loft úr kraga barkaraufarrennu þegar hún tók hinn látna úr öndunarvél. „Ákærðu var vel kunnugt um að henni bar að tæma loftið úr kraganum, líkt og vinnulýsing um notkun talventilsins kveður á um,“ kemur fram í ákærunni og urðu afleiðingarnar þær að fall varð á súrefnismettun og blóðþrýstingi sjúklingsins með þeim afleiðingum að hann lést skömmu síðar. Einnig er hún sökuð um að hafa brugðist tilkynningaskyldu með því hafa ekki látið þann hjúkrunarfræðing sem varð eftir á stofu sjúklingsins vita að hún hafi sett á hann talventil. „Þessi vanræksla ákærðu stuðlaði enn frekar að því að mannsbani hlaust af gáleysi hennar.“ Er hjúkrunarfræðingurinn krafin um á fimmtándu milljón króna frá aðstandendum hins látna, þar á meðal vegna kostnaðar við útför hans.
Hjúkrunarfræðingur sýknaður af ákæru um manndráp Dómsmál Landspítalinn Tengdar fréttir Eftirlit með heilbrigðiskerfinu sagt ófullnægjandi Mikið völundarhús mætir þeim sem vilja leita réttar síns í kjölfar mistaka í heilbrigðiskerfinu, segir í grein Guðrúnar Bryndísar Karlsdóttur og Auðbjargar Reynisdóttur. 14. júlí 2014 16:00 Ófullnægjandi mönnun hjúkrunarfræðinga eykur dánartíðni "Rannsóknin sýnir hvaða áhrif hjúkrun hefur á lifun sjúklinga. Hjúkrun skiptir máli,“ segir formaður Félags hjúkrunarfræðinga. 28. febrúar 2014 16:27 "Hún getur ekki verið ein ábyrg“ Landspítalinn og hjúkrunarfræðingur á gjörgæsludeild spítalans voru í dag ákærð fyrir manndráp af gáleysi vegna atviks sem kom upp á spítalanum í október 2012, en ekkja mannsins sem lést segist ósátt við ákæruna. Framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítalanum segir íslenskt heilbrigðiskerfi standa á krossgötum. 21. maí 2014 19:08 Segir ákæru ríkissaksóknara gegn hjúkrunarfræðingi á spítalanum mikið áfall Forstjóri Landspítalans segir ákæru ríkissaksóknara gegn hjúkrunarfræðingi á spítalanum vera mikið áfall. Hún valdi straumhvörfum og skapi óvissu í störfum heilbrigðisstarfsmanna. 5. júlí 2014 13:02 Læknamistök á gjörgæslu: Ekkjan vill ekki kæra: "Við erum öll mannleg og getum gert mistök" Ekkja manns sem lést vegna læknamistaka á gjörgæsludeild Landspítalans í fyrra vill ekki að hjúkrunarfræðingur sem sinnti honum verði ákærður fyrir manndráp af gáleysi. Börn hans eru á sama máli en fjölskyldan hyggst fara fram á skaðabætur. 21. desember 2013 20:00 Hjúkrunarfræðingur ákærður - Ekkja mannsins vildi ekki kæra „Ég vona að þeir hlúi að þessari konu og hjálpi henni yfir þetta því það er ekkert gaman að vera með svona á bakinu.“ 21. maí 2014 14:22 Óttast að ákæra muni breyta heilbrigðiskerfinu Stjórnendur Landspítalans vilja byggja upp menningu meðal starfsmanna sem hvetur þá til að tilkynna öll mistök. Á næstunni kemur í ljós hvort heilbrigðisstarfsmaður verður ákærður fyrir manndráp af gáleysi. 20. desember 2013 07:00 Sextán tíma vaktir hjúkrunarfræðinga sjaldgæfar Þingfesting í máli hjúkrunarfræðings Landspítalans sem ákærður hefur verið fyrir manndráp af gáleysi verður á föstudag. 3. júní 2014 07:00 Hjúkrunarfræðingur ákærður fyrir manndráp Hinum ákærða hefur þegar verið úthlutað lögfræðingi ásamt því að Landspítalinn mun hafa sinn eigin lögmann. 21. maí 2014 10:46 Mál hjúkrunarfræðings hjá ríkissaksóknara Lögreglurannsókn á máli hjúkrunarfræðings sem grunaður er um manndráp af gáleysi er lokið. Málið er á borði ríkissaksóknara og ekki enn komin ákæra í málinu. 19. desember 2013 07:00 Landlæknir setur spurningamerki við ákæru um manndráp Landlæknisembættið hefur skoðað kerfi Norðmanna þar sem mistök í heilbrigðisþjónustu er ekki tilkynnt til lögreglu nema grunur sé um glæpsamlegt athæfi. 23. maí 2014 07:00 Heilbrigðisstarfsmenn uggandi vegna ákæru um manndráp Fagfólk og aðstandandi sjúklings óttast breytt viðhorf og meiri þöggun um mistök vegna ákærunnar 22. maí 2014 07:00 Mest lesið Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Innlent Fleiri fréttir Verðhækkanir varpa skugga á grillsumarið mikla Isavia fær áheyrn um hvort reka hafi mátt mann vegna aldurs Laupur vekur mikla athygli sundlaugagesta í Árbæjarlaug Fórnuðu gömlu húsi fyrir slökkviliðsæfingu Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Ófremdarástand á Hverfisgötu og verðhækkanir á grillmat „Hann breytir börnunum okkar í nikótínþræla“ Þingmenn vilja vita meira um hvers vegna Úlfar hætti störfum Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Fjórtán hvíldartímabrot á 28 dögum Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Bílar Íslendinga ekki tryggðir sé þeim stolið erlendis „Maður heyrir svona drunur áður en bylgjan kemur“ Helsti valdamaður flugsins var oftast utan sviðsljóssins Fljótandi ruslsuga fjarlægir rusl úr sjónum við gömlu höfnina Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Ökumenn í tékki á Suðurlandsvegi og Grímsey skelfur „Jómfrúarræður“ séu barn síns tíma Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Ekki á dagskrá að flýta atkvæðagreiðslu um ESB-viðræður Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Hjörtur Torfason er látinn Sjá meira
Eftirlit með heilbrigðiskerfinu sagt ófullnægjandi Mikið völundarhús mætir þeim sem vilja leita réttar síns í kjölfar mistaka í heilbrigðiskerfinu, segir í grein Guðrúnar Bryndísar Karlsdóttur og Auðbjargar Reynisdóttur. 14. júlí 2014 16:00
Ófullnægjandi mönnun hjúkrunarfræðinga eykur dánartíðni "Rannsóknin sýnir hvaða áhrif hjúkrun hefur á lifun sjúklinga. Hjúkrun skiptir máli,“ segir formaður Félags hjúkrunarfræðinga. 28. febrúar 2014 16:27
"Hún getur ekki verið ein ábyrg“ Landspítalinn og hjúkrunarfræðingur á gjörgæsludeild spítalans voru í dag ákærð fyrir manndráp af gáleysi vegna atviks sem kom upp á spítalanum í október 2012, en ekkja mannsins sem lést segist ósátt við ákæruna. Framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítalanum segir íslenskt heilbrigðiskerfi standa á krossgötum. 21. maí 2014 19:08
Segir ákæru ríkissaksóknara gegn hjúkrunarfræðingi á spítalanum mikið áfall Forstjóri Landspítalans segir ákæru ríkissaksóknara gegn hjúkrunarfræðingi á spítalanum vera mikið áfall. Hún valdi straumhvörfum og skapi óvissu í störfum heilbrigðisstarfsmanna. 5. júlí 2014 13:02
Læknamistök á gjörgæslu: Ekkjan vill ekki kæra: "Við erum öll mannleg og getum gert mistök" Ekkja manns sem lést vegna læknamistaka á gjörgæsludeild Landspítalans í fyrra vill ekki að hjúkrunarfræðingur sem sinnti honum verði ákærður fyrir manndráp af gáleysi. Börn hans eru á sama máli en fjölskyldan hyggst fara fram á skaðabætur. 21. desember 2013 20:00
Hjúkrunarfræðingur ákærður - Ekkja mannsins vildi ekki kæra „Ég vona að þeir hlúi að þessari konu og hjálpi henni yfir þetta því það er ekkert gaman að vera með svona á bakinu.“ 21. maí 2014 14:22
Óttast að ákæra muni breyta heilbrigðiskerfinu Stjórnendur Landspítalans vilja byggja upp menningu meðal starfsmanna sem hvetur þá til að tilkynna öll mistök. Á næstunni kemur í ljós hvort heilbrigðisstarfsmaður verður ákærður fyrir manndráp af gáleysi. 20. desember 2013 07:00
Sextán tíma vaktir hjúkrunarfræðinga sjaldgæfar Þingfesting í máli hjúkrunarfræðings Landspítalans sem ákærður hefur verið fyrir manndráp af gáleysi verður á föstudag. 3. júní 2014 07:00
Hjúkrunarfræðingur ákærður fyrir manndráp Hinum ákærða hefur þegar verið úthlutað lögfræðingi ásamt því að Landspítalinn mun hafa sinn eigin lögmann. 21. maí 2014 10:46
Mál hjúkrunarfræðings hjá ríkissaksóknara Lögreglurannsókn á máli hjúkrunarfræðings sem grunaður er um manndráp af gáleysi er lokið. Málið er á borði ríkissaksóknara og ekki enn komin ákæra í málinu. 19. desember 2013 07:00
Landlæknir setur spurningamerki við ákæru um manndráp Landlæknisembættið hefur skoðað kerfi Norðmanna þar sem mistök í heilbrigðisþjónustu er ekki tilkynnt til lögreglu nema grunur sé um glæpsamlegt athæfi. 23. maí 2014 07:00
Heilbrigðisstarfsmenn uggandi vegna ákæru um manndráp Fagfólk og aðstandandi sjúklings óttast breytt viðhorf og meiri þöggun um mistök vegna ákærunnar 22. maí 2014 07:00