Ekki sannað að Pistorius hafi myrt Steenkamp að yfirlögðu ráði

Dómarinn á þó enn eftir að kveða upp úrskurð sinn í málinu og gæri fundið Pistorius sekan um manndráp (e. „culpable homicide“) sem gæti leitt til langs fangelsisdóms.
Dómarinn Thokozile Masipa sagði sakborninginn hafa verið „mjög slæmt vitni“, reynt að koma sér hjá því að svara spurningum og ekki alltaf svarað spurningum sannleikanum samkvæmt. Eitt og sér þýði það þó ekki að Pistorius sé sekur.
Dómari sagði saksóknara þó hafa mistekist að sanna að Pistorius hafi drepið Steenkamp að yfirlögðu ráði í kjölfar rifrildis.
Masipa sagði frásögn sakborningsins ekki hafa verið í samræmi við mann sem skaut án þess að hugsa. Pistorius hefur áður sagt að hann hafi ekki ætlað sér að drepa neinn, en dómarinn Thokozile Masipa segir að hæðin á skotunum sem hann skaut að baðherbergishurðinni á heimili sínu bendi til annars. Þá sagði dómarinn engan vafa vera um það að Pistorius hafi brotið af sér þegar hann skaut að baðherbergishurðinni.
Masipa sagði fyrr í morgun að hún efaðist um trúverðugleika nokkurra vitna sem sögðust hafa heyrt öskur og skothljóð að kvöldi 13. febrúar 2013. Dómarinn tók dæmi um að ekki sé mögulegt að ákvarða úr 177 metra fjarlægð hvort karl eða kona hafi verið að öskra inni í lokaðri íbúð.
Oscar Pistorius en hann er sakaður um að hafa myrt unnustu sína, Reevu Steenkamp, á heimili þeirra í Pretoriu í Suður-Afríku. Þrátt fyrir að hafa viðurkennt að hafa skotið Steenkamp hefur Pistorius ávallt neitað því að hafa banað henni að yfirlögðu ráði. Hann hafi talið að um innbrotsþjóf hafi verið að ræða.
Réttarhöldin hafa vakið mikla athygli en Pistorius gæti átt 25 ára fangelsi yfir höfði sér verði hann fundinn sekur.
Tengdar fréttir

„Stundum er ég hrædd við þig“
Farið var í gegnum farsíma Oscars Pistorius og unnustu hans Reevu Steenkamp, sem hann skaut til bana á Valentínusardag í fyrra.

Pistorius var á internetinu klukkustund áður en hann skaut kærustuna
Sagðist áður hafa farið að sofa um tíuleytið.

Pistorius ekki með kvíðaröskun
Réttarhöldin yfir suður-afríska spretthlauparanum hófust að nýju í dag.

Lokaræður réttarhaldana yfir Pistorius fluttar
Saksóknari í réttarhöldunum yfir Oscar Pistorius fór með lokaræðu sína í morgun, þar sem hann sagði Pistorius hafa verið svikult vitni.

Hús Pistoriusar sett á sölu
Lögfræðikostnaður vegna morðmáls fer síhækkandi.

Pistorius aftur í réttarsalinn
Í dag hefjast réttarhöld yfir hinum suðurafríska Oskar Pistoriusi, einfætta hlauparanum, aftur eftir tveggja vikna hlé.

„Ummæli mín voru ósmekkleg en þau áttu við um uppvakninga en ekki fólk“
Spretthlauparinn Oscar Pistorius segist ekki hafa ætlað að skjóta neinn.

Kvíðaröskun Pistoríusar til athugunar
Réttarhöldin yfir Suður-afríska spretthlauparanum Oscari Pistoriusi hefjast að nýji í dag eftir hlé.

Pistorius segist ekki hafa haft ástæðu til að skjóta
Réttarhöldin yfir spretthlauparanum Oscari Pistorius halda áfram í dag.

Færði hluti úr stað á heimili Pistoriusar
Verjendur spretthlauparans Oscars Pistorius, sem ákærður er fyrir morð, segja skipulagsleysi hafa ríkt við rannsókn málsins.

Ebba Guðný um Pistorius: „Hann er fullkominn og ég vil ættleiða hann“
Suðurafríski fréttavefurinn iol-News birtir í dag viðtal við Ebbu Guðnýju Guðmundsdóttur en hún er viðstödd réttarhöldin yfir spretthlauparanum Oscari Pistorius.

Réttarhöldin yfir Pistoriusi framlengd
Munu standa yfir þar til um miðjan maí.

Össur hættir að styrkja Pistorius
Stoðtækjaframleiðandinn Össur hf. hefur ákveðið að endurnýja ekki samning sinn við suðurafríska spretthlauparann Oscar Pistorius, en réttað er yfir honum þessa dagana í Suður-Afríku vegna gruns um morð.

Finnur ennþá lykt af blóðinu
Spretthlauparinn Oscar Pistorius bar vitni í Pretoríu í dag.

„Þú greipst til vopna í þeim eina tilgangi að skjóta hana til bana“
Saksóknarinn Gerry Nel þjarmaði að spretthlauparanum Oscari Pistorius í vitnastúkunni í morgun.

Dómur yfir Pistorius kveðinn upp 11. september
Dómari í máli Oscars Pistorius kveður upp úrskurð sinn eftir rúman mánuð.

Hlé gert á réttarhöldum yfir Pistorius
Réttur mun koma saman á ný þann 5. maí næstkomandi.

Dómur kveðinn upp í máli Oscars Pistorius á morgun
Hlauparinn gæti átt lífstíðarfangelsi yfir höfði sér verði hann fundinn sekur.

„Ég var hrifnari af henni en hún af mér“
Vitnaleiðslur yfir suður-afríska spretthlauparanum Oscar Pistorius standa nú yfir annan daginn í röð.

Pistorius í átökum á skemmtistað
Pistorius var á skemmtistaðnum VIP á laugardagskvöld ásamt frænda sínum og þurfti að yfirgefa staðinn.

Dómur kveðinn yfir Pistoriusi
Pistorius á yfir höfði sér 25 ára fangelsi verði hann fundinn sekur um morð að yfirlögðu ráði.

Skotvopnasérfræðingur handlék byssu Pistoriusar án hanska
Lögreglumenn fóru frjálslega með sönnunargögn á vettvangi.

Pistorius þróaði með sér óvenju sterk varnarviðbrögð
Íþróttalæknir, sem er síðasta vitni verjanda Pistorius sagði við réttarhöldin í dag að hann hafi þróað með sér óvanalega sterk varnarviðbrögð sem verið orsökin fyrir dauða Steenkamp.

Saksóknari sakar Pistorius um lygar
Réttarhöldin yfir spretthlauparanum Oscari Pistorius ganga hægt.

Myndir af blóðugum Pistoriusi sýndar í réttarsal
Myndirnar voru teknar skömmu eftir að lögreglumenn komu á vettvang en Pistorius skaut kærustu sína, Reevu Steenkamp, til bana í febrúar í fyrra.

Pistorius skoðaði klámsíður nóttina fyrir morðið
Saksóknari vill með þessu sýna fram á að samband þeirra hafi líklega ekki verið eins hamingjuríkt og hann hefur látið af.

Grátköst Pistoriusar sögð ekta
Félagsráðgjafi sem aðstoðað hefur suðurafríska spretthlauparann Oscar Pistorius bar vitni í réttarsal í Pretoríu í dag.

Réttarhöldum yfir Pistorius frestað
Seinkað til 7. apríl eftir að meðdómari var lagður inn á spítala.

Verjandi Pistorius flytur lokaræðu sína
Málflutningi í réttarhöldunum yfir Oscar Pistorius lýkur í dag þegar verjandi hans, Barry Roux, heldur lokaræðu sína.

Ljósmyndir af líki Steenkamp vöktu óhug í réttarsalnum
Spretthlauparinn Oscar Pistorius ældi enn á ný á níunda degi réttarhaldanna.

Pistorius líklegur til að fremja sjálfsmorð
Þetta kemur fram í skýrslu sálfræðings sem lesin var upp í réttarhöldum Pistoriusar í dag.