
Fed up (2014)
Fed Up er ný heimildarmynd sem kom út núna í byrjun september.
Hún er framleidd af fréttakonunni Katie Couric sem margir þekkja úr fréttaskýringþættinum 60 mínútur.
Í myndinni er farið yfir þann raunveruleika sem blasir við okkur að allt sem að við héldum að við vissum fyrir víst um mataræði og hreyfingu síðustu 30 ár er rangt.
Myndin er skylduáhorf fyrir alla þá sem að hafa áhuga á heilsu og hreyfingu.

May I be Frank fjallar um Frank Ferrante, 54 ára bandaríkjamann sem lifir á brúninni.
Hann er offitu- og þunglyndissjúklingur, fíkniefnaneytandi og búin að brjóta allar brýr að baki sér í samskiptum sínum við fjölskyldu og vini … semsagt gjörsamlega á botninum.
Myndin segir á hvetjandi hátt frá breytingu á lífsmunstri Franks frá botninum að toppnum á 42 dögum.
Myndin fékk frábærar viðtökur og hefur unnið til fjölda verðlauna.

Simply raw fjallar um sex sykursjúka einstaklinga sem taka þeirri áskorun að neyta einungis hráfæðis í 30 daga samfleytt.
Á þessu tímabili mega þeir heldur ekki reykja, drekka, neyta koffíns né taka inn sykursýkislyf.
Myndin er á köflum mjög tilfinningaþrungin enda um viðamiklar og erfiðar breytingar að ræða í lífi einstaklinganna.

Er frábær og oft á tíðum mjög fyndin heimildarmynd um þrjá New York búa sem að elska kjöt- og mjólkurvörur.
Þeir taka þeirri áskorun að neyta ekki dýraafurða í 6 vikur og á sama tíma gera þeir sjálfstæða rannsókn á aðbúnaði dýra í Bandaríkjunum.
Breyttist skoðun þeirra á neyslu dýravara á þessum 6 vikum?
Fóru þau aftur í að neyta þeirra?
Vegucated er margverðlaunuð heimildarmynd sem vakti mikla athygli og umtal eftir að hún kom út.

Er áhugaverð heimildarmynd sem fjallar að miklu leyti um upphaf lífrænu byltingarinnar í Bandaríkjunum.
Í myndinni koma fram þær breytingar sem hafa orðið í framleiðslu á ræktun matvæla undanfarin ár og rýnt í það hvernig framtíðin komi til með að líta út haldi allt áfram í þeim farvegi sem að landbúnaður er í dag.

Það mætti segja að heimildarmyndin Supersize me sé einskonar frumkvöðull á sviði heimildarmynda sem fjalla um heilsu og hreyfingu.
Myndin segir frá Morgan Spurlock, leikstjóra myndarinnar, sem tekur það að sér að lifa einungis á því sem er í boði á matseðli McDonalds í heila 30 daga.
Myndin er mjög áhrifaríkt þar sem að við fáum það beint í æð hvað mataræði hefur mikil áhrif á andlega og líkamlega heilsu.

Sicko er mjög heimildamynd eftir leikstjórann Michael Moore og var hún tilnefnd til óskarsverðlauna í flokki heimildarmynda 2008.
Í myndinni er heilbrigðiskerfið í Bandaríkjunum gagnrýnt og borið saman við heilbrigðiskerfi annars staðar í heiminum.
Michael er þekktur fyrir að hafa sterkar pólítískar skoðanir og kemur þeim oft á framfæri með húmórískum hætti.

Merkilegt mynd sem veltir vöngum yfir því af hverju við mannfólkið erum að fitna.
Reynt er að finna svar við því hver sé hin fullkomna fæða og vinna úr þeim ótal upplýsingum og ráðum sem gefin er um það sem er hollt og óhollt.
Farið er yfir fæðuval forfeðra okkar og það borið saman við fæðu nútímamannsins.

Food Inc. fjallar um þróun matvælaframleiðslu í Bandaríkjunum.
Notkun skordýraeiturs, stera og erðabreytinga eru skoðuð ofan í kjölin og aðbúnaður dýra sömuleiðis.
Nokkuð merkilegt mynd sem gaman er að horfa á og bera saman við framþróun matvælaframleiðslu hér á Íslandi.