Í fyrsta sinn í 18 ár hefur sala á vínylplötum farið yfir milljón eintök í Bretlandi. Fyrr á árinu hafði því verið spáð að vínylsala myndi ná þessu markmiði en mikil aukning hefur verið á vínylsölu á undanförnum árum. En það var árið 1996 sem sala á vínylplötum rétt skreið yfir milljón eintök og var það fyrsta og fremst Britpop hljómsveitum að þakka. Mest selda vínylplata ársins í Bretlandi er AM með Arctic Monkeys þrátt fyrir að hún hafi komið út í fyrra. Þá seldist fyrsta plata Royal Blood einnig vel á vínyl sem og nýja Pink Floyd platan en 6000 vínyleintök seldust í fyrstu viku hennar á lista. Líklegt að sala á vínylplötum muni svo taka annan kipp núna í desember þegar að fólk fer að huga að jólagjafainnkaupum.
Írska söngkonan Sinead O‘Connor er ekki þekkt fyrir að liggja á skoðunum sínum en hún hefur nú sagt þeim sem gagnrýna nýja Band Aid lagið að halda fokking kjafti. Laginu er ætlað að safna pening fyrir baráttuna gegn ebólu en fjölmargir listamenn hafa hinsvegar gagnrýnd tilgang lagsins og texta. O‘ Connor er ósátt með þessa gagnrýni en hún syngur einmitt í nýju útgáfunni, segir hún að enginn hafi rétt á að gagnrýna þetta og bætti við að það væri hvort sem er öllum drullusama um hvað Damon Albarn finnist um málið, en hann hefur verið einn harðasti gagnrýnandi þessarar nýju útgáfu.