Nafnið er Karl Finnur Thorlacius skrifar 5. desember 2014 14:33 Opel Karl er snaggaralegur smábíll sem verður á lágu verði.
Frá Opel berast þær fréttir að næsta sumar verði formlega kynnt til sögunnar nýtt nafn í flokki smábíla. Og nafnið er Karl. Opel leitaði ekki langt yfir skammt því nafnið er í höfuðið á syni stofnanda fyrirtækisins. Miðað við lýsingarnar liggur mikill metnaður að baki hönnun bílsins og fylgir sögunni að í þessum nýja meðlim Opel fjölskyldunnar sé að finna öll þau þægindi sem teljast þau framsæknustu í dag. Opel hafði það strax sem markmið við hönnun Karl að hann ætti að kosta minna en 10.000 evrur og mun það standa. Karl mun sóma sér vel við hliðina á, annars vegar Opel Adam og svo Opel Corsa, sem kemur nýr á markaðinn strax eftir áramót. Þeir munu saman fullkomna flotta línu í smábílum sem í boði verður frá Opel frá og með sumrinu 2015. Bílabúð Benna mun kynna Opel Karl þegar hann kemur á markað.
Mest lesið Segir 60 mínútur hafa misst sjálfstæðið og hættir Erlent Sagður bjóða frið fyrir formlega eign á Krímskaga Erlent Beint flug milli Akureyrar og útlanda aldrei verið meira Innlent Óþarfi að nota kauðslega þýdda málshætti í páskaeggin Innlent Nýjar íbúðir seljast verr en aðrar vegna stærðar Viðskipti innlent Valdatafl í Vatíkaninu: Hver verður næsti páfi? Erlent Segir líklega langt í næsta gos við Sundhnúka Innlent „Ég er mannleg“ Innlent Oscar þori varla út úr húsi af ótta við að vera sendur úr landi Innlent Hófu skothríð á ferðamenn í Kasmír Erlent