Bjarki Már: Fékk svakalega gæsahúð í þjóðsöngnum

Hann átti hreint út sagt stórkostlega innkomu í vörnina eftir um tíu mínútna leik. Hún var þá í miklu basli en datt heldur betur í gírinn með innkomu Bjarka. Mögnuð frammistaða hjá honum í sínum öðrum leik á stórmóti.
„Ég gerði bara mitt besta. Það var samt ekki alveg nóg. Við hefðum þurft að vinna einn bolta í viðbót. Það vantaði svo lítið upp á. Við verðum að læra af því,“ sagði varnartröllið eftir að blaðamaður hafði hrósað honum í hástert fyrir sinn leik.
„Það var hrikalega leiðinlegt að fá á sig þetta lokamark. Við vorum að loka ágætlega og sækja menn út. Ég veit ekki alveg hvað gerðist. Ég var bara á fullu.“
Bjarki fékk að spila síðustu þrettán mínúturnar gegn Noregi og gerði það vel. Hann fékk mun meiri tíma núna og sýndi og sannaði að honum er meira en treystandi fyrir verkefninu.
„Það hefði verið skemmtilegra að vinna en þetta fer í reynslubankann hjá mér. Það er gott að vera komnir áfram en við vildum allir meira. Það var líka þvílík stemning í húsinu og ég fékk svakalega gæsahúð þegar áhorfendur sungu þjóðsönginn fyrir leikinn.“
Tengdar fréttir

Aron: Svekktur að hafa ekki unnið leikinn
"Þetta var gríðarlega erfiður leikur. Við byrjuðum illa og vorum allt of passífir í vörninni," sagði Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari eftir spennuleikinn mikla gegn Ungverjum.

Hefndin þarf að bíða betri tíma - myndir
Íslenska handboltalandsliðinu tókst ekki að hefna fyrir tapið á Ólympíuleikunum í kvöld þegar liðið gerði 27-27 jafntefli við Ungverjaland í 2. umferð B-riðils á EM í handbolta í Danmörku.

Arnór: Eigum að vinna þetta lið
Strákarnir okkar voru þungir á brún eftir leikinn gegn Ungverjum. Þeir eru komnir áfram í milliriðil en vildu sigur og ekkert annað í kvöld.

Kári: Verðum að hafa þor til þess að sækja á markið
"Getum við ekki bara verið sáttir með þetta? Einn punktur í leik þar sem þetta var orðið svolítið erfitt hjá okkur,“ sagði Fenrísúlfurinn Kári Kristján Kristjánsson eftir jafnteflið gegn Ungverjum.

Íslendingarnir sungu þjóðsönginn án undirspils | Myndband
Karlalandslið Íslands í handknattleik gerði jafntefli gegn Ungverjum á Evrópumótinu í dag. Íslenskir stuðningsmenn í Álaborg stóðu fyrir sínu.

Strákarnir hans Patreks réðu ekki við Danina
Danir eru komnir áfram í milliriðil eftir fjögurra marka sigur á Austurríki, 33-29, í kvöld í annarri umferð A-riðils á Evrópumóti karla í handbolta í Danmörku.

Umfjöllun: Ísland - Ungverjaland 27-27 | Svekkjandi jafntefli gegn Ungverjum
Ísland varð að sætta sig við jafntefli gegn Ungverjum á EM í handbolta og náði þar með ekki að hefna fyrir tapið sára á Ólympíuleikunum í London. Ísland er þó öruggt áfram í milliriðlakeppnina.

Aron: Var brjálaður í leikslok
Aron Pálmarsson fór strax í kælingu eftir leikinn í kvöld og var með kælingu á hné og niður er blaðamaður ræddi við hann. Hann sagðist vera í lagi þó svo hann finndi fyrir verkjum.

Guðjón Valur: Lít á þetta sem tapað stig
Guðjón Valur Sigurðsson, fyrirliði íslenska landsliðsins, var hundfúll eftir jafnteflið á móti Ungverjum í kvöld en íslenska landsliðið fékk á sig jöfnunarmark átta sekúndum fyrir leikslok og tókst síðan ekki að nýta síðustu sóknina sína.

Guðjón: Hárrétt ákvörðun hjá Ásgeiri
"Þetta var kaflaskiptur leikur. Margir hlutir gengu vel. Það sem gekk vel fór svo að ganga illa. Við áttum möguleika á sigri en gekk því miður ekki," sagði landsliðsfyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson eftir jafnteflið gegn Ungverjum í kvöld.

Jafnt hjá Makedóníu og Tékklandi
Makedónía og Tékkland eru bæði komin á blað í A-riðli eftir að liðin skildu jöfn í dag, 24-24.

Aron: Þetta stig gæti orðið mjög dýrmætt í framhaldinu
Íslenska handboltalandsliðið var grátlega nálægt því að vinna annan leik sinn í röð á EM í Danmörku þegar liðið gerði 27-27 jafntefli við Ungverja í Álaborg í kvöld. Aron Kristjánsson, landsliðsþjálfari sá þetta bæði sem unnið og tapað stig.

Spánverjar í basli með spræka Norðmenn
Heimsmeistarar Spánar eru með fullt hús stiga eftir sigur á Noregi, 27-25, í síðari leik dagsins í B-riðli. Norðmenn börðust hetjulega í leiknum en það dugði ekki til.