Tinna Björg Friðþórsdóttir heldur úti blogginu tinnbjorg.com. Matar- og kökugerð eiga hug hennar allan þegar hún er ekki að læra lögfræði í HR. Á blogginu sínu deilir hún ýmsum húsráðum ásamt matar- og kökuuppskriftum sem hún hefur sankað að sér í gegnum tíðina. Hér deilir hún uppskrift að indverskri vetrarsúpu og grófum speltbollum.
Uppskrift
1 1/2 rauðlaukur
3 hvítlauksrif
olía
1 lítil sæt kartafla
4 gulrætur
5 msk. milt karrýmauk
2 tsk. karrý
4 msk. tómatpúrra
1 1/2 dl kókosflögur
1 dós kókosmjólk
700-800 ml vatn
grænmetiskraftur
salt
svartur pipar

Aðferð
- Skerið rauðlauk í bita og steikið í stórum potti með olíu ásamt pressuðum hvítlauk í 5 mínútur eða þar til rauðlaukurinn verður mjúkur.
- Afhýðið og skerið sæta kartöflu og gulrætur í teninga. Bætið teningunum í pottinn og steikið áfram í nokkrar mínútur.
- Hrærið karrýmauki, karrýi og tómatpúrru saman við grænmetið ásamt kókosflögum.
- Hellið kókosmjólk og vatni í pottinn og hitið að suðu.
- Smakkið súpuna til með grænmetiskrafti, salti og svörtum pipar og látið krauma við vægan hita í 45 mínútur.
- Takið að lokum pottinn af hellunni og maukið súpuna með töfrasprota eða í matvinnsluvél.
- Magnið af grænmetiskrafti fer eftir tegund því hann er misjafnlega saltur. Þess vegna hef ég þá þumalputtareglu að setja alltaf kraftinn fyrst og svo saltið.

Grófar speltbollur
5 dl gróft spelt
1 dl fimm korna fræblanda
1 1/2 tsk lyftiduft
1 tsk. sjávarsalt
2 dl ABmjólk
1 1/2-2 dl heitt vatn
Aðferð
- Blandið spelti, fræblöndu, lyftidufti og sjávarsalti saman í skál og hrærið ABmjólk og vatni saman við. Mótið í hæfilega stórar bollur og sáldrið fræjum yfir.
- Bakið við 200°C í 20-25 mínútur.
- Deigið á að vera blautt og klístrað þegar bollurnar eru mótaðar.
- Í staðinn fyrir að dreifa úr speltbollunum á bökunarplötunni baka ég þær saman í klasa, þannig haldast þær mýkri. Þegar ég á ekki til ABmjólk hef ég stundum í hallæri notað hreint skyr eða gríska jógúrt hrista saman við smá mjólk.