Matur

Bjórbollakökur sem koma á óvart - UPPSKRIFT

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Bjórbollakökur vekja lukku í sumarteitum.
Bjórbollakökur vekja lukku í sumarteitum.

Guinness-bollakökur

* Um það bil 24 kökur

1 bolli dökkur Guinness-bjór

230 g smjör

¾ bolli kakó

2 stór egg

2/3 bolli sýrður rjómi

2 bollar hveiti

2 bollar sykur

1½ tsk. matarsódi

¾ tsk. salt

Baileys-krem

345 g smjör

4-5 bollar flórsykur

4-5 msk. Baileys-líkjör



Hitið ofninn í 170°C. Bræðið smjör og bjórinn saman í potti yfir meðalhita. Hrærið af og til þangað til þetta er búið að blandast. Bætið síðan kakói saman við og blandið vel saman. Færið síðan af hellunni. Blandið hveiti, sykri, matarsóda og salti saman í skál og leggið hana til hliðar. Í annarri skál er eggjum og sýrðum rjóma hrært saman. Hellið Guinness-blöndunni saman við og blandið vel. Bætið þurrefnunum varlega saman við. Setjið blönduna í möffinsform og bakið í fimmtán til sautján mínútur. Leyfið kökunum að kólna áður en kremið er sett á.

Blandið smjöri saman við flórsykur, hálfan bolla í senn, þangað til blandan er orðin mátulega þykk. Bætið síðan við eins miklum Baileys-líkjör og þið viljið og skreytið bollakökurnar.

Fengið hér.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.