Þrátt fyrir það þá hryllir vesturlandabúum oft við tilhugsuninni um að gæða sér á þessum iðandi smádýrum. Sem dæmi um hversu hræðileg tilhugsunin þykir að þá er þetta algeng áskorun í þáttum þar sem virkilega reynir á þolrifin líkt og Survivor eða Fear Factor.
Ferðalangar sem hafa ferðast til vinsælla ferðamannastaða líkt og Tælands, Kína eða Mexíkó geta keypt sér steikt skordýr og gætt sér á þeim líkt og um hnetur sé að ræða. Þá mala sumir skordýrin í duft og nota í stað hveitis í matargerð.
Einnig er hægt að gæða sér á þeim sem eftirrétti og panta eina dós af súkkulaðihúðuðum kræsingum beint heim að dyrum.
Þú getur pantað þér silkiorma, sporðdreka, orma eða engisprettur.

Ef þú veltir því fyrir þér þá er klígja við skordýrum lært viðbragð því ungum börnum hryllir oft ekki við skordýrum fyrr en þeim er kennt það og gjarnan bragða þau mörg hver á þeim, þar til fullorðinn uppalandi bendir á að „þetta er ógeðslegt, svona gerir maður ekki“.
Það er í raun ekki hvort heldur hvenær við á norðari slóðum förum útí garð til að tína nokkra ánamaðka í pastasalatið okkar.