Snorri: Mótið er vonbrigði
Hvenær í leiknum sástu möguleikann á að vinna Danina hverfa?
„Hann minnkaði bara með hverri mínútunni sem leið. Þetta var hrikalega léleg byrjun. Ég veit ekki hvað er hægt að segja, þetta er búið að vera gegnumgangandi allt mótið. Það segir sig sjálft að lenda 5-6 mörkum undir í byrjun gegn einu af bestu liðum heims er ekki ávísun á gott. Heilt yfir erum við að spila á móti miklu betra liði í dag, liði sem spilar betur en við á öllum sviðum handboltans."
Má ekki segja að þið hafið fengið á baukinn hjá þremur liðum sem þið hafið mætt á þessu móti?
„Það er engin spurning og heilt yfir höfum við verið að spila illa og mótið er vonbrigði. Það er ekki hægt að tala öðru vísi um það“.
Nú fengið þið tækifæri til að velta þessari byrjun í leikjum á mótinu fyrir ykkur, var aldrei hægt að laga það?
„Greinilega ekki en auðvitað var talað um það. Við erum meðvitaðir um það hvernig leikirnir hafa byrjað hjá okkur en við höfum ekki fundið lausnir á því. Því get ég ekki sagt þér af hverju það var eða hvernig við hefðum átt að gera betur. Það var ekki planið að byrja leikina svona illa en eitthvað var það sem gerðist að þetta fór svona. Þegar við gerum það á móti góðu liðunum að þá fer það bara á einn veg."
Nú er þetta engin endastöð, þið eruð í miðri baráttu um að komast á næsta mót. Það er enginn bilbugur í ykkur?
„Nei, nei en menn eru náttúrulega ekkert hátt uppi þegar menn eru dottnir út úr heimsmeistaramóti og kannski ekki verið að spila vel. Staðan í riðlinum í Evrópukeppninni er ekkert góð en hún er ekki hræðileg og það er því verðugt verkefni sem bíður liðsins."
Af þeim liðum sem þið hafði spilað gegn, hvert er það besta?
„Ég veit það bara ekki. Ég vona bara að Íslendingur verði heimsmeistari“.
Tengdar fréttir

Arnór: Ég spilaði illa á þessu móti
Arnór Atlason var fúll út í sjálfan sig eftir tapið gegn Dönum og einnig fúll með að vera á leið heim.

Umfjöllun: Ísland - Danmörk | Ísland úr leik á HM
Guðmundur Guðmundsson og danska liðið sá til þess að Ísland féll úr leik á HM í handbolta í kvöld.

Ásgeir Örn: Vandamálið liggur í andlega þættinum
Ásgeir Örn Hallgrímsson segir að andlega hliðin hafi brugðist íslenska liðinu í upphafi leikja á HM.

Björgvin Páll: Súrt að falla úr leik á móti Dönum
Björgvin Páll Gústavsson varði tuttugu skot á móti Dönum í kvöld og var enn einu sinni besti leikmaður mótsins. Björgvin Páll var veikur í gær og um tíma óvíst hvort hann gæti spilað.

Sverre lék líklega síðasta landsleikinn í kvöld: Ennþá sárara
Sverre Jakobsson lék í tæpar 18 mínútur í vörninni gegn Dönum í kvöld. Hann reiknar með því að þetta hafi verið síðasti landsleikur hans en segist þó vera til taks í umspilsleikina í Evrópukeppninni verði kallað á hann.

Alexander: Danir geta orðið heimsmeistarar
Alexander Petterson var bestur í íslenska liðinu í kvöld þegar liðið tapaði á móti Dönum í sextán liða úrslitunum á HM í Katar.

Einkunnir Gaupa: Sex leikmenn fá lægstu einkunn
Líkt og áður gefur Guðjón Guðmundsson, handboltasérfræðingur Stöðvar 2 Sports, leikmönnum og þjálfaranum einkunnir.

Guðmundur: Þykir vænt um drengina í íslenska liðinu
Kvöldið var afar sérstakt fyrir Guðmund Guðmundsson, landsliðsþjálfara Danmerkur. Þá mætti hann drengjum sem hann þjálfaði í mörg ár og vann til tveggja verðlauna með á stórmótum.

Róbert: Við áttum aldrei möguleika
Línumaðurinn Róbert Gunnarsson fann sig ekki frekar en flestir aðrir leikmenn íslenska liðsins gegn Dönum í kvöld.

Vignir: Auðvitað eigum við erindi í keppnina
Vignir Svavarsson og Kári Kristján Kristjánsson skoruðu báðir þrjú mörk úr þremur skotum af línunni. Vignir hrósaði Dönunum eftir leikinn.