Ísland gerði jafntefli við Frakkland, í þriðja leik liðsins á HM 2015 í Katar í kvöld. Strákarnir okkar voru nálægt því að vinna leikinn en nýttu ekki síðustu sóknina.
Eftir hvern leik íslenska liðsins mun Guðjón Guðmundsson, handboltasérfræðingur Stöðvar 2 Sports, gefa leikmönnum og þjálfaranum einkunnir.
Leikmenn og þjálfarar fá einkunn á bilinu 1-6 með umsögn, en neðst í fréttinni má sjá hvað hver einkunn þýðir.
Einkunnir Íslands gegn Frakklandi:
Björgvin Páll Gústavsson - 4
Var frábær í fyrri hálfleik og varði þar tíu af fjórtán skotum sínum í leiknum. Datt niður í seinni hálfleik, en fyrir mótið sagði ég að þetta yrði hans mót. Varði tvo bolta undir lokin sem voru mjög mikilvægir.
Guðjón Valur Sigurðsson - 4
Fyrirliðinn sýndi frábæra baráttu; skoraði ekki mikið en var öruggur á vítalínunni og dreif liðið áfram með útgeislun.
Aron Pálmarsson - 5
Frábær leikur hjá stráknum. Virðist vera með augu í hnakkanum. Virkaði þreyttur undir lokin og skal engan undra. Gullmoli. Fimm mörk úr ellefu skotum segja ekki alla söguna, gaf níu stoðsendingar.
Snorri Steinn Guðjónsson - 5
Frábær dagur hjá leikstjórnandanum. Hélt ró sinni allan leikinn og náði að stjórna hraða leiksins og skoraði mikilvæg mörk.
Alexander Petersson - 4
Spilaði varnarleikinn frábærlega; sá besti hjá honum í keppnini. Á mikið inni sóknarlega. Fjögur mörk úr tólf skotum. Hann sjálfur getur ekki verið ánægður með það.
Ásgeir Örn Hallgrímsson - 5
Lék frábærlega og sýndi sitt rétta andlit. Einn besti leikmaður Ísland á EM í Danmörku er mættur til leiks í Katar. Til hamingju með það. Virkilega sterkur í vörninni í dag og skilaði sínu í sókninni hnökralítið.
Róbert Gunnarsson - 4
Nýtir færin sín mjög vel. virkar í mjög góðu formi og hefur sjaldan verið betri. Enn og aftur þarf að passa blokkina inn á línu svo ekki sé dæmt sóknarbrot.
Sverre Andreas Jakobsson - 4
Gamli maðurinn barðist grimmilega í leiknum. Hans besti leikur í keppninni. Vissulega er farið að hægjast á verkfræðingnum frá Akureyri en hann náði líka að miðla af reynslu sinni til hinna varnarmannanna.
Bjarki Már Gunnarsson - 4
Hans besti leikur í keppninni. Var ótrúlega klókur í sinni varnarvinnu og er lítið að láta reka sig út af fyrir óþarfa brot.
Stefán Rafn Sigurmannsson -
Kom ekkert við sögu.
Arnór Atlason - 3
Skilaði sinni varnarvinnu ágætlega og var afar mikilvægur undir lok leiksins þegar Aron var farinn að þreytast. Á mikið inni í sókninni.
Sigurbergur Sveinsson -
Kom ekkert við sögu.
Arnór Þór Gunnarsson - 3
Var hluti af sterkri liðsheild. Ákafur leikmaður sem fær nú tækifæri á stóra sviðinu. Hann verður að nýta færin sín betur.
Kári Kristján Kristjánsson - 3
Skilaði sínu ágætlega. Á meira inni. Athyglisvert er, að hann hafi komið heim, spilað með Val og virkar í betra standi en oftast áður.
Vignir Svavarsson - 3
Ótrúlega duglegur og fer langt á viljanum. Mikilvægur liðinu en lætur reka sig út af fyrir klaufaleg brot. Það getur verið stórhættulegt eins og sást í dag. Bestu liðin nýta yfirtöluna svo vel.
Aron Rafn Eðvarðsson -
Kom inn á til að reyna að verja eitt víti. Dugar ekki til að fá einkunn.
Aron Kristjánsson - 4
Þjálfarinn stýrði liðinu af mikilli festu. Reyndi að nýta þá krafta sem hann hefur til staðar. Kannski að skiptingarnar í fyrri hálfleik í stöðunni í 12-9 hafi komið aðeins of fljótt. Annars traust frammistaða þjálfarans.
Útskýring á einkunnum:
6 - Heimsklassa frammistaða
5 - Frábær frammistaða
4 - Góð frammistaða
3 - Sæmileg frammistaða - skilaði sínu
2 - Ekki nógu góð frammistaða
1 - Slakur leikur
Einkunnir Gaupa: Þrír nálægt fullu húsi

Tengdar fréttir

Aron Kristjáns: Erfitt að stöðva ísskápinn á línunni
Landsliðsþjálfarinn var ánægður með sterkan leik strákanna í jafnteflinu gegn Frakklandi.

Sverre: Gott að vera svekktur eftir jafntefli við Frakka
Varnarjaxlinn pirraður á línunni sem dómararnir hafa tekið á mótinu.

Umfjöllun: Danmörk - Þýskaland 30-30 | Lindberg tryggði Dönum stig í frábærum leik
Þýskaland og Danmörk skildu jöfn, 30-30, í frábærum leik í D-riðli á HM í handbolta í kvöld.

Arnór: Megum ekkert vera of góðir með okkur
Skyttan öfluga var kátur með hvernig liðið kláraði sóknirnar gegn Frakklandi.

Björgvin: Síðasta sem fer hjá þessum gaurum er sjálfstraustið
Landsliðsmarkvörðurinn ánægður með að sjá íslensku geðveikina aftur komna.

Róbert: Enginn vissi hvað mátti gera
Róbert Gunnarsson var svekktur með að hafa ekki unnið Evrópumeistara Frakka á HM í Katar í kvöld.