91,3 milljónir króna í margvísleg verkefni Stefán Árni Pálsson skrifar 20. janúar 2015 12:30 Menningar- og ferðamálaráð felur fimm manna faghópi að fjalla um umsóknir um árlegar styrkveitingar ráðsins. mynd/aðsend
Elsa Hrafnhildur Yeoman, formaður menningar- og ferðamálaráðs, kynnti styrkveitingar ráðsins í Borgarbókasafninu – menningarhúsi í Spönginni í gær. Í aðdraganda þeirra hélt ráðið fjölsóttan opinn fund um nýja menningarstefnu Reykjavíkurborgar „Menning er mannréttindi“ er gildir til ársins 2020. Eitt af nýmælum stefnunnar er gerð aðgerðaráætlunar sem fylgir stefnunni og verður uppfærð árlega. Stefnuna og aðgerðaráætlun hennar má sjá á heimasíðu borgarinnar. Framlag Reykjavíkurborgar til menningarlífsins endurspeglar að mörgu leyti þau markmið sem sett eru í menningarstefnunni til að geta stutt sem best við bakið á gróskumiklu menningarlífi í borginni. Menningar- og ferðamálaráð felur fimm manna faghópi að fjalla um umsóknir um árlegar styrkveitingar ráðsins. Tillögur faghópsins eru ráðgefandi en menningar- og ferðamálaráð ákveður úthlutun. Faghópurinn hafði 193 umsóknir til umfjöllunar og námu styrkbeiðnir tæpum 400 milljónum króna til margvíslegra verkefna. Faghópurinn gerði tillögur til ráðsins um að vilyrði yrðu gefin til 104 verkefna fyrir samtals 91,3 milljónir króna á árinu 2015 og að tíu þeirra hlytu samninga til fleiri ára í viðbót við þá sem fyrir eru. Ráðið samþykkti tillögur faghópsins. Samningar til fleiri ára eru með fyrirvara um samþykki borgarráðs og heimildir í fjárhagsáætlun komandi ára. Samúel Jón Samúelsson Big Band var útnefnt Tónlistarhópur Reykjavíkur 2015 og hlýtur 2 m. kr. styrk. Hljómsveitin SJS Big Band er einstök í íslenskri tónlistarflóru en hún leikur frumsamda blöndu afríks fönks og amerískrar jazztónlistar. Hljómsveitina skipa 14 hljóðfæraleikarar og er hún jafnan skipuð úrvals spilurum úr flóru reykvísks tónlistarlífs. SJS Big Band hefur fyrir löngu sannað sig sem frumleg og lífleg hljómsveit með mikinn listrænan metnað. Þar ræður styrk stjórn Samúels J. Samúelssonar miklu, en hann semur og útsetur að mestu verk sveitarinnar. Hún hefur spilað víða, bæði hér heima og erlendis og hvarvetna hlotið góðar viðtökur.Framlag til samstarfssamninga við borgarhátíðir til þriggja ára verður árlega:9 m.kr. til Iceland Airwaves, 3 m.kr. til Jazzhátíðar í Reykjavík, 2 m.kr. til Tónskáldafélags Ísland vegna Myrkra músíkdaga og 2 m. kr. til Blúshátíðar í Reykjavík.Framlag til samstarfssamninga við borgarhátíðir til tveggja ára verður árlega: 7 m.kr. til Hönnunarmiðstöðvar vegna Hönnunarmars, 4 m.kr. til Bókmenntahátíðar í Reykjavík og 1 m.kr. til Listar án landamæra.Framlag til samstarfssamninga við hljómsveitir til þriggja ára verður árlega:1.8 m.kr. til Kammersveitar Reykjavíkur, Stórsveitar Reykjavíkur og Caput. Stærstu styrkina 2015 hljóta Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík RIFF 4 m.kr. , myndlistarhátíðin Sequences 2 m.kr., Reykjavík Fashion Festival 1.8 m.kr. og 1.5 m.kr. fá hátíðirnar þrjár Secret Solstice Festival, Reykjavík Food Festival og Food and fun. Aðrir styrkir nema frá 100 þúsund krónum til 1 milljón króna skv. hjálögðum lista. Faghóp um styrki menningar- og ferðamálaráðs skipuðu í ár þau Katrín Hall formaður, Ólöf Nordal, Magnea Matthíasdóttir, Hörður Lárusson og Bragi Valdimar Skúlason. Menningar- og ferðamálaráð skipa: Elsa Hrafnhildur Yeoman, formaður, Þórgnýr Thoroddsen, Dóra Magnúsdóttir, Stefán Benediktsson, Júlíus Vífill Ingvarsson, Marta Guðjónsdóttir og Ingvar Mar Jónsson.1 m.kr. hljóta Musica Nova – nýsköpunarsjóður tónlistar, Lab Loki, Shalala, Evrópa kvikmyndir ehf eða Vesturport, Heimili kvikmyndanna Bíó Paradís vegna Alþjóðlegrar barnakvikmyndahátíðar, Kirkjulistahátíð og Múlinn jazzklúbbur.800 þús. kr. SÍM – Samband íslenskra myndlistarmanna vegna Dags myndlistar, IBBY á Íslandi, Týsgallerí, Óður ehf vegna Mengis, Steinunn Marta Jónsdóttir vegna Harbinger, Jaðarber, Alþjóðlega tónlistarakademían í Hörpu, Sigrún Grendal vegna Nótunnar, Möguleikhúsið, Sigríður Sunna Reynisdóttir vegna Sumarbókarinnar, Brúðuheimar ehf vegna Íslenska fílsins og sviðslistahátíð ASSITEJ fyrir unga áhorfendur.700 þús. kr. Dudo ehf vegna Iceland Writers Retreat, Íslensk tónverkamiðstöð vegna Vistar, Kammerhópurinn Nordic Affect, Reykjavík Shorts&Docs, Listasafn ASÍ, ÞOKA gallerí, Unnur Elísabet Gunnarsdóttir vegna Spellbound, Rósa Ómarsdóttir vegna Carrie´s Cry og Védís Kjartansdóttir vegna Choreography Reykjavík.600 þús. kr. Rodent ehf. vegna Heimstónlistar í Reykjavík og Klapp kvikmyndafélag vegna Skærumynda í Reykjavík 2015.500 þús. kr. Sinfóníuhljómsveit unga fólksins, Erki tónlist sf, Listvinafélag Hallgrímskirkju, Félag kvikmyndagerðamanna vegna ANIREY, SLÍJM sf vegna Næturvarps, Melkorka Sigríður Magnúsdóttir vegna The Milkywhale Experience, Anna Kolfinna Kuran vegna dansverks um Bríeti Bjarnhéðinsdóttur, Gígja Jónsdóttir vegna dansverksins Kapp við keppi, Edda Björg Eyjólfsdóttir vegna Hússins, Dóra Jóhannsdóttir vegna Haraldsins, Mikael Torfason vegna Ljótu stelpnanna, Leikhópurinn Fljúgandi fiskar vegna Andaðu, Óskabörn ógæfunnar vegna Illsku, Bergdís Júlía Jóhannsdóttir vegna Caroll: Berserkur og Sigrún Hlín Sigurðardóttir vegna Stofnunar Ólafar Sölvadóttur.400 þús. kr. Elektra ensemble, Sigurþór Hallbjörnsson (Spessi ) vegna Breiðholts, Verksmiðjan vegna leikverksins Svona hugsa sterkar konur, Katrín Gunnarsdóttir vegna dansverksins Shades of History, Brynja Sveinsdóttir vegna Persónulegrar heimildaljósmyndunar, Háloftið vegna leikverksins Lokaæfing og Katrín Gunnarsdóttir vegna dansverksins Kvika.350 þús. kr. Halaleikhópurinn.300 þús. kr. Elfa Lilja Gísladóttir vegna Upptaktsins, Tónskóli Sigursveins, Lúðrasveitin Svanur, Megan Horan vegna Breiðholt festival, Tónskáldafélag Íslands vegna Norrænna músíkdaga, 15:15 tónleikasyrpan, Lúðrasveit verkalýðsins, Sinfóníuhljómsveit áhugamanna, FÍT vegna Klassíkur í Vatnsmýrinni, Guðmundur Ólafsson vegna Tenórsins II, Aðalbjörg Þóra Árnadóttir vegna leikverksins Natalía og Natalía, Þóra Rós Guðbjartsdóttir vegna Vatnsins, Þurfandi Leikfélag vegna leikverksins Gripahúsið, Guðmundur Ingi Þorvaldsson vegna leikverksins Agi, Soðið svið vegna leikverksins Extravaganza, Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi, Töfrahurð sf, Pars pro toto vegna dansverksins Eilífur eldur, Fatahönnunarfélag Íslands, Laufey Jónsdóttir og Íslensk grafík.200 þús. kr. Alþjóðleg flautuhátíð í Reykjavík 2015, Harpa Guitarama, Midnight Sun Guitar Festival 2015, Listafélag Langholtskirkju, Ljótikór vegna Grannmetis og átvaxta, Óperarctic félagið vegna Gæla, fæla og þvæla, Sverrir Guðjónsson vegna óperunnar Furðuveröld Lísu, Listfræðafélag Íslands vegna NORDIK 2015, Finnur Karlsson og Camerarctica.150 þús. kr. Trio Aurora og 100 þús. kr. Ungleikur. Að auki samþykkti ráðið að úthluta Hörpu Björnsdóttur styrk til niðurgreiðslu ljósmyndakaupa af Ljósmyndasafni Reykjavíkur úr sjóði vegna útgáfu myndríkra bóka sem tengdar eru sögu og menningu í Reykjavík allt að kr. 300.000 .
Food and Fun HönnunarMars RIFF Mest lesið Mannskæðasta árásin á Húta hingað til Erlent „Þetta er orðið pínu þreytt, tveir bílar á sex dögum“ Innlent Uggandi vegna atlögu að háskólum: „Við ætlum ekki að lifa í ótta“ Erlent Bað fyrir friðsamlegum kosningum meðan hann hékk á krossinum Erlent Gamall ráðherra vildi nýtt hús, en nýr ráðherra gæti fengið gamalt hús Innlent „Rosalega erfitt“ að keppa við innflutt grænmeti Innlent Einhleypir karlmenn standa verst Innlent Hafþór keppir í Rússlandi: „Auðvitað veldur þessi ákvörðun ákveðnum vonbrigðum“ Innlent Bresk systkini létust í kláfferjuslysinu Erlent Nafn mannsins sem lést í Garðabæ Innlent Fleiri fréttir „Rosalega erfitt“ að keppa við innflutt grænmeti Stígvél og tækniframfarir Hótanir gegn háskólum og krossfestingar Gamall ráðherra vildi nýtt hús, en nýr ráðherra gæti fengið gamalt hús „Þetta er orðið pínu þreytt, tveir bílar á sex dögum“ „Ágæt ábending“ um bótaþega en tekur ekki undir allar athugasemdir fjármálaráðs Háholt sett aftur á sölu Skjólstæðingur heilbrigðisstofnunar veittist að starfsfólki Ráðherra bregst við athugasemdum, leikur ársins og ódýrt grænmeti „Stórtækir íbúðareigendur“ eiga 20 prósent íbúða í borginni Handtekinn grunaður um vasaþjófnað í miðborginni Engar reglur á Íslandi um hve mörg börn sæðisgjafar megi eignast Morðhótunum í garð kvenna fari fjölgandi Rafmennt í samstarf og kaupir eignir þrotabúsins Kartöflugeymsla orðin að menningarhúsi Selfyssinga Hafa áhyggjur af því að sýn Veitna á Heiðmörk sé of þröng Skortur á reglum um sæðisgjafir og menningarmiðstöð í kartöflugeymslu Háværar framkvæmdir stöðvaðar Hafþór keppir í Rússlandi: „Auðvitað veldur þessi ákvörðun ákveðnum vonbrigðum“ Rannsaka ólöglegt fiskeldi Áformin dragi verulega úr möguleikum til útivistar Geti haft í för með sér „ónæði, mengun og álag á fráveitu“ Ofbeldi í nánum samböndum og mótmæli á Tenerife Einhleypir karlmenn standa verst Misskilnings gætt um breytingar á lögum um innritun í framhaldsskóla Andstaða forstjóra Flugleiða við Cargolux réð því að hluturinn fór Bað lögreglu um að bjarga kettinum úr klóm nágrannans Vantar sjálfboðaliða til að laga 500 hjól handa efnaminni fjölskyldum „Umhverfi sem gerir eðlilegt og lögmætt flug að forréttindum stóru rekstraraðilanna“ Nafn mannsins sem lést í Garðabæ Sjá meira