Þrátt fyrir vandað val á matvörum og meðvitund um minni sykurneyslu eru samt sem áður matvörur í boði sem innihalda miklu meiri sykur en okkur grunaði. Landlæknir opnaði nýlega frábæra heimasíðu með upplýsingum um sykurmagn í hinum ýmsu matvörum og á hrós skilið fyrir þetta framlag til baráttunnar gegn sykurpúkanum. Þrátt fyrir að nánast ómögulegt sé að sneiða algerlega hjá sykri með eðlilegu mataræði þá er ágætt að vera með viðmið og vitneskju um það að þó að vara sé „holl" þá er hún langt frá því að vera sykurlaus. Í eftirfarandi vörum er oft á tíðum meiri sykurmagn í en grunur leikur á í fyrstu:
Jógúrt og skyr
Já, það hefur verið margrætt um sykurmagnið í þessum vörum. Þetta er vara sem við gefum börnunum okkar með góðri samvisku og borðum flestöll sjálf reglulega. Margar mjólkurvörur innihalda miklu meira viðbætt sykurmagn en góðu hófi gegnir.
Granóla
Granóla með grísku jógúrti og ferskum ávöxtum er tilvalinn morgunverður en lestu vel á pakkningarnar þegar þú velur þér granóla. Sum þeirra eru með allt of miklum viðbættum sykri. Best er að sjálfsögðu að búa til sitt eigið granóla.
Íþróttadrykkur
Þá erum við ekki að tala um orkudrykki heldur drykki sem seldir eru til nota á íþróttaviðburðum og við iðkun. Vatn er meira en nóg þegar kemur að líkamsrækt venjulegrar manneskju. Afreksfólk í íþróttum þarf frekar að huga að mataræðinu almennt og getur þá verið að íþróttadrykkur eigi við. Hér er uppskrift af heimatilbúnum og hollari íþróttadrykk.
Salat
Salatið sjálf er að sjálfsögðu bráðhollt fyrir þig og því fjölbreyttara því betra. Salatdressingar eru aftur á móti annað mál og þá sérstaklega þessar fitusnauðu. Allra best er að búa til sína eigin salatdressingu. Hér er uppskrift.
Tómatssósa
Já, því miður. Tómatssósa er fátt annað en sykur. Ein matskeið af sósunni inniheldur eina teskeið af sykri.

