Einnig á pabbinn að passa að drekka mikið af gosi, en mamman á að borða mikið af hnetum, bönunum, söltu snakki og kjöti.
Þá er gott að gera það í standandi stöðu, eða aftan frá og passa að pabbinn njóti sín. Og passaðu að tunglið sé kvartfullt og að dagurinn sé oddadagur.
Annað eins er uppi á teningnum ef þú vilt eignast stelpu. Mamman á að borða mikið af fræjum, grænu grænmeti, ferskum fisk (þó ekki hráum) og mjólkurvörum.
Ef þú vilt stelpu þá á mamman að vera ofan á og passa að hún fái fullnægingu. Ekki skemmir það fyrir ef það er fullt tungl og dagur á sléttri tölu.
Kyn er fyrir mörgum foreldrum stórmál og gengur fólk mislangt til að tryggja ákveðna kynjasamsetningu barna sinna.

Það eru til fleiri tilgátur eins og þær mæður sem borða vel af mat séu líklegri til að eignast stráka, en staðreyndin er sú að það eru helmingslíkur á að eignast strák og að eignast stelpu.
Það eru um 20% líkur á getnaði í hverjum tíðahring ef samfarir lims í leggöng með sáðláti eru stundað á tíma í kringum egglos. (Gott að muna að sæði getur lifað allt að fimm daga inni í leggöngum)
Það er þó eitt sem pör geta prófað og það er að fylgjast með slímmyndun og líkamshita. Sumir sverja við það þegar kemur að því að reyna stýra kyni.
Tilgátan er sú að sæði með Y litning syndi hraðar en lifi skemur og því ef þú vilt geta strák ættu samfarir að eiga sér stað sem næst egglosi. Öfugt ef ert að reyna geta stelpu.

Það er kannski ágætt að taka fram að hjartsláttur, lega og stærð kúlunnar og hvort þig langi frekar í súran brjóstsykur frekar en súkkulaði spáir ekki fyrir um kyn. Það má hafa gaman af þessum vangaveltum en ekki taka sem heilögum sannleika.
Þá getur sónar einnig klikkað eins og þessi breska fjölskylda komst að þegar þeim var sagt að þau ættu von á stelpu og höfðu innréttuðu herbergið bleikt frá toppi til táar og valið stelpunafn á ófætt barnið. Þegar það svo kom í heiminn með lítið typpi þá brá þeim, og fjölskyldu þeirra heldur betur í brún.
Það þarf ekki að hafa áhyggjur að kvenlegar hugsunir móður móti ófætt barnið á meðgöngu, börn eru bara börn og hugsanir móður um kyn stýrir hvorki kynvitund né kynhneigð. Kannski best að leyfa bara því að koma í ljós þegar barnið kemur í heiminn.