Brynjar hefur ekki tapað á móti Stólunum í vetur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. apríl 2015 13:45 Brynjar Þór Björnsson, fyrirliði KR. Vísir/Vilhelm
Brynjar Þór Björnsson, fyrirliði KR, verður í sviðsljósinu í kvöld þegar KR tekur á móti Tindastól í fyrsta leik liðanna í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í Dominos-deild karla. Leikur KR og Tindastóls hefst klukkan 19.15 í DHL-höllinni í Frostaskjóli og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. KR og Tindastóll hafa mæst fjórum sinnum á tímabilinu, KR hefur unnið þrjá leiki og Stólarnir einn. Brynjar Þór hefur þó ekki upplifað það ennþá í vetur að tapa fyrir Tindastólsliðinu því hann missti af tapleiknum á Króknum. KR-ingar töpuðu þá sínum fyrsta leik á tímabilinu en leikurinn fór fram 22. janúar. Brynjar er því sá eini af lykilmönnum KR-liðsins sem hefur ekki upplifað það að tapa fyrir Tindastól í vetur. Magni Hafsteinsson tók hinsvegar fram skóna á ný í kjölfar tapsins á Króknum og er því í taplausa hópnum með Brynjari. Brynjar hefur skorað 21,0 stig að meðaltali í þremur leikjum sínum við Stólanna í vetur þar af 23 stig eða meira í tveimur af þessum þremur leikjum. Brynjar átti mikinn þátt í því að koma í veg fyrir sigur Stólanna í deildarleik liðanna í DHL-höllinni í október en hann skoraði þá 8 af 28 stigum sínum á síðustu tveimur mínútunum og í framlengingunni. Brynjar hefur því skorað mun meira að meðaltali á móti Tindastól en hann er að skora að meðaltali í Dominos-deildinni sem eru 14,4 stig að meðaltali í leik.Leikir Brynjars á móti Tindastól í vetur:27. september - Úrslitaleikur Lengjubikarsins í Ásgarði KR vann leikinn 83-75 23 stig, 2 stoðsendingar, 2 stolnir23. október - Deildarleikur í DHL-höllinni KR vann leikinn 95-89 eftir framlengingu 28 stig, 8 fráköst, 2 stoðsendingar, 2 stolnir boltar2. febrúar - Undanúrslitaleikur í bikar í DHL-höllinni KR vann leikinn 88-80 12 stig, 3 stoðsendingar, 4 stolnir
Dominos-deild karla Mest lesið Kvartar undan Man. City við Evrópusambandið Enski boltinn Gera grín að Jürgen Klopp Fótbolti Segir Trump að hætta þessu bulli varðandi Kanada Fótbolti Víkingar skipta um gír Íslenski boltinn Fékk egg í andlitið á blaðamannafundi: „Skítuga eggjakakan þín“ Sport Apaummæli Mourinho kostuðu hann mikið Fótbolti Lewis Hamilton: Ég verð aldrei gamall maður Formúla 1 „Getum gengið stoltar frá borði“ Handbolti Líklegast að Ísland mæti Doncic á EM og spili í Póllandi Körfubolti GAZ-leikur kvöldsins: „Leiðinlegt ef þeir halda að þeir séu komnir með þetta“ Körfubolti Fleiri fréttir Tvær tillögur um að fjölga karlaleikjum Líklegast að Ísland mæti Doncic á EM og spili í Póllandi GAZ-leikur kvöldsins: „Leiðinlegt ef þeir halda að þeir séu komnir með þetta“ Sjóðandi heitur Curry gaf mömmu sinni treyjuna eftir leik Rosaleg troðsla í NBA: „Greyið sem var undir honum“ „Ég elska að vera á Íslandi“ Ekki lengur hægt að vera allsber og taka orminn Neitar að tjá sig um ósættið við Kristófer: „Á milli mín og hans“ „Færð mig ekki í einhverja umræðu um Íslandsmeistaratitilinn núna“ Uppgjörið: Njarðvík - Þór Ak. 93-80 | Sjötti sigur grænna í röð Valskonur unnu meistarana Hatar samfélagsmiðla Bíður í startholunum í Washington: „Ég elska Ísland og Selfoss“ „Geitin“ í kvennakörfunni hætt Óvænt lausn á erfiðleikum Martins? „Væri á sama tíma alveg galið“ Doncic með þrennu á móti Dallas og Lakers fólkið söng „Takk fyrir Nico“ Aþena vann loksins leik „Eins gott að þeir fari að fokking semja“ Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 77-64 | Slökktu á gestunum í seinni hálfleik „Hún er búin að vera algjör klettur í þessu öllu“ Utan vallar: Pedersen ætti að vera þjóðhetja Martin: „Fór rosalega fyrir brjóstið á mér að heyra það“ „Þetta er eins og að vera dömpað“ Aðrir í VIP-sætum þeirra sem skráðu söguna Berjast um að fá Ísland til sín á EM: „Viljum fá eitthvað á móti“ Sex fara fyrir Ísland á sitt fyrsta stórmót Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Sigur Ungverja á Ítalíu dugði skammt Sjá meira