Veiðidagur fjölskyldunnar verður haldinn næstkomandi sunnudag, 28. júní. Þá gefst landsmönnum kostur á að veiða án endurgjalds í fjölmörgum vötnum víðsvegar um landið.
Landssamband Stangaveiðifélaga hefur staðið fyrir Veiðidegi fjölskyldunnar í á þriðja áratug ásamt veiðiréttareigendum. Hugmyndin á bak við daginn er að kynna stangveiði sem fjölskylduíþrótt. Í ár verða 32 vötn í boði á veiðideginum.
Eftirtaldir veiðistaðir verða í boði frítt fyrir alla fjölskylduna:
Á Suðurlandi verður frítt að veiða í Eyrarvatni, Geitabergsvatni, Þórisstaðavatni, Elliðavatni, Meðalfellsvatni, Þingvallavatni fyrir landi þjóðgarðsins, Úlfljótsvatni og Gíslholtsvatni.
Á Vesturlandi og Vestfjörðum verður frítt að veiða í Langavatni á Mýrum, Hítarvatni, Vatnasvæði Lýsu, Hraunsfjarðarvatni, Hraunsfirði, Baulárvallavatni, Haukadalsvatni, Vatnsdalsvatni í Vatnsfirði og Syðridalsvatni í Bolungarvík.
Á Norðurlandi verður frítt að veiða í Hópinu, Höfðavatni, Vestmannsvatni, Botnsvatni, Ljósavatni, Hraunhafnarvatni, Æðarvatni, Arnarvatni, Kringluvatni og Sléttuhlíðarvatni.
Á Austurlandi verður frítt að veiða í Haugatjarnir, Urriðavatni, Langavatni, Víkurflóði og Þveit.
Nánari upplýsingar um veiðisvæðin er að finna á heimasíðu LS um Veiðidag fjölskyldunnar: https://www.landssambandid.is/